Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Metur áhrif vindorkuvers neikvæð

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.3.2026 | 10:56 Metur áhrif vindorkuvers neikvæð Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair Ísland Guðmundur Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Skipulagsstofnun segir að fyrirhugað vindorkuver Qair Iceland. ehf. í landi Sólheima í Dalabyggð geti haft verulega neikvæð umhverfisáhrif og hefur stofnunin efasemdir um að réttlætanlegt sé að veita leyfi fyrir framkvæmdinni vegna neikvæðra áhrifa á fuglalíf og þar skipti mestu máli möguleg áhrif á haförn. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar á umhverfismatsskýrslu Qair um verkefnið en í því felst að reisa 209 MW vindorkuver með 29 vindmyllum sem verði allt að 200 m á hæð. Í álitinu segir að framkvæmdirnar geri ráð fyrir mannvirkjum sem verði af allt annarri stærðargráðu m.t.t. sýnileika og áhrifa á ásýnd en þekkjast í náttúru Íslands. Miðað við sýnileikakort komi fyrirhugað vindorkuver á Sólheimum til með að sjást víða að, m.a. frá Skógarströnd í vestri til Hvammstanga, Víðidalstunguheiðar og Arnarvatnsheiðar í austri. Áhrif versins á ásýnd og landslag muni verða verulega neikvæð í Laxárdal og á Laxárdalsheiði vegna mikillar nálægðar. Þá segir Skipulagsstofnun að framkvæmdasvæðið sé innan alþjóðlega mikilvægs fuglasvæðis með ríkulegt fuglalíf og mikilli umferð arna og farfugla. Vindorkuverið muni valda afföllum á fuglum sem líklega séu vanmetin í umhverfismatsskýrslu Qair auk þess sem fuglar munu missa búsvæði. Telur stofnunin óvissu ríkja um hversu mikið boðaðar mótvægisaðgerðir muni draga úr áflugi hafarnar. Qair ósammála niðurstöðum Skipulagsstofnunar Segir stofnunina seilast langt Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair á Íslandi, segir að félagið sé ósammála mörgum af þeim niðurstöðum sem Skipulagsstofnun kemst að, einkum varðandi hugsanleg áhrif vindmyllugarðsins á fugla. „Við erum að fara í gegnum álitið sem er mjög ýtarlegt og við þurfum að leita álits margra til að komast til botns í þessum niðurstöðum. En fljótt á litið finnst okkur að Skipulagsstofnun hafi seilst ansi langt í umfjöllun sinni, einkum um fuglakaflann, og ummæli um að finna þurfi verkefninu annan stað eru mjög sérkennileg miðað við niðurstöður rannsókna. Að okkar mati er allt tal um að áhrif vindorkuversins á fuglalíf séu vanmetin í matsskýrslunni rangt,“ segir Friðjón. Hann segir að Skipulagsstofnun geri lítið úr rannsóknum sem voru fyrirfram samþykktar af stofnuninni eftir að matsskyldufyrirspurn var lögð fram. „Okkar umhverfismatsskýrsla um Sólheima er gríðarlega umfangsmikil og rannsóknir sem þar er byggt á eru raunar mun víðtækari en þar var gert ráð fyrir. Og þær rannsóknir sýna fram á að áhrifin á fuglalíf verði í meginatriðum óveruleg,“ segir Friðjón og bætir við að mótvægisaðgerðir sem fyrirtækið boðaði í umhverfismatsskýrslunni séu mjög ýtarlegar, en að mestu virtar að vettugi í áliti Skipulagsstofnunar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Metur áhrif vindorkuvers neikvæð Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Spánn sendir freigátu til Kýpur Birgitta Líf hætt sem markaðsstjóri World Class Landsleikirnir á Hlíðarenda og í Kaplakrika Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samfylkingin hefur lagt áherslu á önnur mál Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Forsendurnar riða til falls Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Metur áhrif vindorkuvers neikvæð Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Spánn sendir freigátu til Kýpur Birgitta Líf hætt sem markaðsstjóri World Class Landsleikirnir á Hlíðarenda og í Kaplakrika Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Forsendurnar riða til falls Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article