Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða, segir að Félagsbústaðir, dótturfélag Reykjavíkurborgar, hafi í raun tapað 568 milljónum króna á árinu 2025 ef leiðrétt er fyrir matsbreytingu fjárfestingareigna sem hann segir að gefi ekki rétta mynd af rekstri félagsins. Félagsbústaðir högnuðust um tæplega 7,7 milljarða króna á árinu 2025, samkvæmt ársreikningi sem félagið birti í gær. Hagnaðurinn skýrist einkum af því að matsbreyting fjárfestingareigna nam 8,2 milljörðum króna í fyrra. Sjá einnig Félagsbústaðir högnuðust um 7,7 milljarða „Það gefur ekki rétta mynd af rekstri Félagsbústaða að nota slíka virðishækkun á fasteignum félagsins til að fegra rekstrarreikning þess, enda er slík matsbreyting reiknuð stærð, sem skilar ekki raunverulegum tekjum til rekstrarins,“ segir í bókun Kjartans á stjórnarfundi Félagsbústaða í gær. Kjartan segir fjármagnsskipan félagsins vera ósjálfbæra og bendir á að rekstrartekjur hafi numið 7.437 milljónum króna á árinu 2025, rekstrargjöld 4.256 milljónum og hrein fjármagnsgjöld 3.749 milljónum. Þá hafi veltufé frá rekstri numið einungis 1.756 milljónum króna á árinu og rétt staðið undir afborgunum langtímalána, sem námu 1.663 milljónum. „Afar lítið svigrúm er því fyrir hendi til fjárfestinga hjá félaginu,“ segir Kjartan. Taka verði viðvörunum endurskoðenda alvarlega Skuldsettur vöxtur Félagsbústaða hafi haldið áfram á árinu 2025. Skuldir félagsins námu 81.739 milljónum króna í árslok og jukust um 7,2% á milli ára. „Veltufjárhlutfall í árslok 2025 var aðeins 0,49, sem er langt undir því sem eðlilegt getur talist en alla jafna er talið æskilegt að þetta hlutfall sé ekki undir 1,0. Taka verður viðvaranir endurskoðenda félagsins alvarlega, sem fram koma á bls. 9 í skýrslu þeirra, um að lítið megi út af bregða til að sjálfbærniviðmið náist ekki.“