Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Keypt 185 íbúðir á grund­velli kaupréttar

Read Full Article →

Félagsbústaðir, dótturfélag Reykjavíkurborgar, keypti 185 íbúðir frá árinu 2017 til loka árs 2025 á grundvelli 5% kaupréttar í nýbyggingum. Þetta kemur fram í svari Félagsbústaða við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Heildarkaupverð þessara íbúða nam 6,93 milljörðum króna eða sem samsvarar 590 þúsund krónum á fermetrann. Fái kauprétti að íbúðum langt undir markaðsvirði Félagsbústaðir hafa kauprétt fyrir allt að 5% íbúða fyrir félagslegt leiguhúsnæði á föstu verði bundið byggingarvísitölu. Í fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segir að þetta fyrirkomulag tryggi félaginu leiguíbúðir sem eru langt undir markaðsvirði. Félagsbústaðir segja að engin af þeim íbúðum sem keyptar hafa verið á ofangreindum grundvelli hafi verið seld. Sjá einnig Sprett­hópur Dags vill hækka kauprétti í nýbyggingum Alls keyptu Félagsbústaðir 43 íbúðir á grundvelli kaupréttar í nýbyggingum á árinu 2025. Meðalverð þeirra nam 52,4 milljónum króna. Ellefu þeirra kostuðu innan við 40 milljónir króna og sú ódýrasta kostaði 26,4 milljónir króna. Ekki er tekið fram í sundurliðun á íbúðakaupum félagsins hvað hver og ein íbúð er stór. Sé miðað við meðaltalið á árunum 2017-2025 er hin meðalíbúð sem félagið keypti á grundvelli kaupréttar á þessum árum 63,5 fermetrar að stærð. Í svarinu kemur einnig fram að Félagsbústaðir hafi frá árinu 2019 til ársloka 2025 keypt 163 íbúðir af Bjargi íbúðafélagi í samræmi við samninga milli aðila um kaup á 20% íbúða í nýbyggingarverkefnum. Heildarkaupverð þeirra íbúða hafi verið rúmlega 5 milljarðar króna og meðalverð á fermetrann um 508 þúsund krónur.

Share this article