Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lofar lóðum degi fyrir kosningar

Read Full Article →

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirritaði í dag tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni á næstu árum við tvö óhagnaðardrifin húsnæðisfélög, annars vegar við Bjarg íbúðafélag og hins vegar við félag á vegum Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Visku stéttarfélags háskólamenntaðra. Samkvæmt viljayfirlýsingunni við Bjarg hyggst Reykjavíkurborg úthluta félaginu lóðum með byggingarrétti fyrir búseturéttar- eða leiguíbúðir á nokkrum svæðum borgarinnar, m.a. í Gufunesi, á Veðurstofuhæð, í Grundarhverfi á Kjalarnesi og á Kringlureit. Þá hefur borgarráð samþykkt að Bjarg íbúðafélag taki við lóðarvilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn vestur í Úlfarsárdal, sem áður hafði verið úthlutað Leigufélagi aldraðra. Fyrirhugað er að þar rísi hagkvæmt húsnæði fyrir eldri borgara. Þá er í viljayfirlýsingunni við FÍN og Visku kveðið á um vilyrði fyrir uppbyggingu á þróunarlóðum. Sjá einnig Stofna óhagnaðar­drifið húsnæðis­félag Í tilkynningu á vef borgarinnar segir að í báðum samningum sé lögð áhersla á fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðategunda innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða fyrir ólíka félagshópa. Þá skuldbindi félögin sig til að framselja Félagsbústöðum 5–10% íbúða á kostnaðarverði. „Ég fagna þessum viljayfirlýsingum mjög og þessu öfluga samstarfi um uppbyggingu fjölbreytts og aðgengilegs húsnæðis í Reykjavík,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Það er frumskylda sveitarfélaga að stuðla að því að fólk geti eignast öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum og með þessum verkefnum tökum við mikilvæg skref til að mæta þeirri ábyrgð af festu og metnaði.“ Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Þorkell Heiðarsson formaður FÍN. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article