Innlent | Morgunblaðið | 6.3.2026 | 13:50 Borgarbúar geta séð rautt blikkandi ljós Ari Edwald, Hildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson. Samsett mynd/Aðsent/mbl.is/Eyþór Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Ef borgarbúar sjá ekki að hér er rautt blikkandi ljós á ferð varðandi hugarfar þeirra sem stýra borginni þá veit ég ekki hvað þarf til,“ segir Ari Edwald oddviti Miðflokksins um tillögur starfshóps um rekstrarvanda Félagsbústaða, sem Morgunblaðið greindi frá í gær. Hann segir sig hafa rekið í rogastans er hann sá rekstrarvanda Félagsbústaða og tillögur starfshópsins. „Þarna er því lýst hvernig borgin hefur kreist út úr byggingaraðilum íbúðir á lægra verði til sín inn í félagslega kerfið og hefur þannig fengið íbúðir með 35% afslætti, sem eðli málsins samkvæmt þrýstir upp verðinu á almenna markaðnum.“ Ari segir að hugmyndir um byggingafyrirtæki borgarinnar veki hugrenningar um sósíalíska hugmyndafræði, um að ríkið sé best til þess fallið að sjá þegnunum fyrir þjónustu á besta verði, hvort sem það er fæði, klæði eða húsnæði, og minnir á að í okkar heimshluta hrundu slíkar tilraunir fyrir 35 árum. „Svo þegar komið er í það óefni að þeir fá ekki nógu margar íbúðir með þessum aðferðum af verktökum þá er það sett fram sem hugmynd að borgin stofni sitt eigið verktakafyrirtæki. Auðvitað er lausnin á húsnæðisvandanum ekki sú að borgin bjóði sem flestum upp á félagslegt húsnæði. Lausnin liggur í því að brjóta nýtt land undir byggð og byggja hagkvæmara húsnæði fyrir fólk sem hefur efni á að kaupa svo það þurfi ekki lengur að flýja í önnur sveitarfélög til að koma sér þaki yfir höfuðið.“ Afnema þarf íþyngjandi kvaðir „Það er fráleitt að okkar mati að sett verði á 10% kvöð um félagslegar íbúðir í Reykjavík og verður enn ein kvöðin sem Reykjavíkurborg leggur á uppbyggingaraðila með tilheyrandi hækkun húsnæðiskostnaðar fyrir almenning,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna um tillögurnar. Hún segir Félagsbústaði hafa, á grundvelli kvaða sem borgin setur á uppbyggingaraðila í Reykjavík, fengið að kaupa 5% allra íbúða í nýbyggingum á langt undir markaðsvirði sem leiði til þess að verðmiðinn á íbúðum á almennum markaði hækki. „Við höfum ekki stutt tillögur um aukin framlög og víðtækari hlut borgarinnar í uppbyggingu félagslegs húsnæðis. Við þurfum sannarlega að hafa traust félagslegt húsnæðiskerfi en rót vandans er auðvitað húsnæðisvandinn sem er heimatilbúinn.“ Hildur segir að leiðin til að tryggja heilbrigðan húsnæðismarkað sé að stórauka lóðaframboð, afnema íþyngjandi kvaðir og tryggja liprari stjórnsýslu. „Langflestir vilja eignast eigið húsnæði og geta þannig tryggt sér og fjölskyldu sinni öruggt húsnæði og efnahagslegt sjálfstæði. Séreignarstefnan er því ákveðinn kjarni í okkar húsnæðisstefnu.“ Brjóta land og byggja meira Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir það koma fram í skýrslunni að þetta sé ósjálfbær rekstur og þá er sama hvort verið sé að reka kaffihús eða húsnæðisfélag, þegar tekjurnar duga ekki fyrir gjöldum þá þarf að bregðast við. „Mér finnst mjög jákvætt að það sé verið að hugsa um Félagsbústaði. Það eru langir biðlistar og rekstrarmódelið virðist aðeins ganga upp með því að félagið kaupi íbúðir af byggingaraðilum með 35% afslætti. Ég held að við viljum öll bregðast við þegar þörfin er mikil hjá þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu. Það er jafnaðarmennska að bjóða upp á tryggt og gott húsnæði og það er ekki hægt að reikna með því að einkamarkaðurinn leysi þessa þörf.“ Spurður um byggingafélag borgarinnar segir Pétur að vonandi komi ekki til þess að borgin þurfi að stofna eigið byggingafélag heldur taki markaðurinn við sér og kaupréttaríbúðunum fjölgi á næstu misserum. „En ef það gengur ekki að kaupa nóg af íbúðum og ekki er byggt nógu mikið fyrir félagslega kerfið þá þarf að skoða hvað sem er og þá er byggingafélag borgarinnar ekkert galnari hugmynd en hvað annað.“ Spurður hvað honum finnist um að fjölga félagslegum íbúðum í deiliskipulagsáætlunum úr 5% í 10% segir Pétur að það sé pólitísk spurning sem þurfi að skoða betur áður en hægt sé að svara. „Ég held að það séu um 3 þúsund íbúðir sem eru í þessu félagslega kerfi þar sem íbúðunum er blandað saman við almenna markaðinn og ég held að það hafi verið rétt ákvörðun og gengið upp að langmestu leyti. Vonandi kemur ekki til þess að við þurfum að hækka þetta hlutfall en það þarf að skoða betur. Er þá ekki leiðin frekar að brjóta nýtt land undir byggð og byggja minna og hagkvæmara húsnæði sem fleiri hafa efni á að kaupa og minnka þannig þrýstinginn á félagslega kerfið? „Það er aldeilis verið að gera það og heilu hverfin í byggingu eins og á Ártúnshöfðanum.“ En það gengur ekki vel að selja þær. „Það er rétt, þær eru of dýrar og þar spilar vaxtastigið inn í líka og reglur Seðlabankans um lánshæfi. Fjármagnskostnaður verktakanna er líka mjög hár þannig að þetta helst allt í hendur. Að sjálfsögðu þarf að brjóta nýtt land og byggja meira af litlum íbúðum. Hvaða flokkur sem verður í meirihluta verður að leggja áherslu á þetta.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eru þeir búnir að gefast upp? Borgarbúar geta séð rautt blikkandi ljós Særún María metin hæfust Beint: Rússar blanda sér í stríðið Sólrún og Viðar tilnefnd til blaðamannaverðlauna Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Borgin kreistir markaðinn Kynnir þingsályktunartillögu um ESB-málið á morgun ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Veðurstofan varar við tíðum eldingum Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Eru þeir búnir að gefast upp? Borgarbúar geta séð rautt blikkandi ljós Særún María metin hæfust Beint: Rússar blanda sér í stríðið Sólrún og Viðar tilnefnd til blaðamannaverðlauna Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Líklega leggst skólahald af Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Veðurstofan varar við tíðum eldingum Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga