Rússnesk stjórnvöld eru að þéna allt að 150 milljónum dala, eða hátt í 20 milljarða króna, aukalega í tekjur af olíusölu á dag eftir stríðsátökin í Íran hófust fyrir tveimur vikum. Í umfjöllun Financial Times segir að Rússland sé stærsti sigurvegar stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Áætlað er að rússneska ríkið hafi hagnast um 1,3–1,9 milljarða dala í formi skatta af olíuútflutningi eftir að Hormússundið lokaðist í reynd sem leiddi til aukinnar eftirspurnar frá Indlandi og Kína eftir rússneskri hráolíu. Þá hafi Bandaríkin mildað refsiaðgerðir sínar gegn Rússlandi og dregið úr þrýstingi sínum á Indland að hætta að kaupa rússneska olíu. Samkvæmt útreikningum FT gæti rússneska ríkið fengið í heildina um 3,3-4,9 milljarða dala, eða allt að 600 milljarða króna, í viðbótar tekjur vegna áhrifa stríðsátakanna fyrir lok mars. Þessir útreikningar byggja á þeirri forsendu að verð fyrir rússneska Úral-hráolíu verði að meðaltali 70-80 dalir á tunnu í mánuðinum. Til samanburðar var meðalverð Úral-olíunnar um 52 dalir í janúar og febrúar. Stórauknar tekjur af olíuútflutningi bætir stöðu rússneskra stjórnvalda talsvert en fyrir stríðið í Íran hafði olíuverð farið lækkandi ásamt því að Indland hafði dregið úr olíukaupum frá Rússlandi vegna þrýstings frá Bandaríkjunum. Útflutningur Rússlands á hráolíu og olíuvörum í febrúar lækkaði um 11,4%, niður í 6,6 milljónir tunna á dag, og hefur ekki verið minni frá því að Rússar réðust fyrst inn í Úkraínu árið 2022, samkvæmt skýrslu Alþjóðlegu orkumálastofnuninni (IEA) sem birt var í gær.