Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur mikil áhrif á innrásarstríð Rússa í Úkraínu. Ákvörðun Bandaríkjanna um að aflétta þvingunum á rússneska olíu er afar góð fyrir efnahag Rússa. Með afléttingunni geta ríki heims keypt olíu frá Rússlandi án þess að eiga á hættu viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. Olíuframboð minnkaði töluvert þegar Íranar hótuðu að ráðast á olíuskip á Hormússundi, sem flytja olíu frá ríkjum Persaflóa. Olíuverð hefur síðan náð nýjum hæðum. Rússar hafa aukið olíuframleiðslu eftir að stríð Írana og Ísraels og Bandaríkjanna hófst, til að anna aukinni eftirspurn. „Og það þýðir að þeir græða á heildarútflutningi jarðefnaeldsneytis um 510 milljónir evra á degi hverjum í marsmánuði. Og þessi olía og þessi gasútflutningur er notaður til þess að fjármagna stríðið í Úkraínu. Þannig þeir sem græða mest á þessari Íranskrísu eru Rússar,“ segir Isaac Levi, greinandi hjá CREA, rannsóknarmiðstöð um orku og loftgæði. 510 milljón evrur á dag jafngildir rúmlega 73 milljörðum íslenskra króna. „Þessi aflétting, ein og sér, af hálfu Bandaríkjamanna gæti séð Rússlandi fyrir um 20 milljörðum dollara fyrir stríðreksturinn. Þetta hjálpar sannarlega ekki við friðarumleitanir,“ sagði Volodymyr Zelensky á blaðamannafundi í dag. Þetta er þó ekki það eina góða sem stríðið í Mið-Austurlöndum hefur í för með sér fyrir Rússa. Úkraínumenn eru í verri stöðu en áður til að biðja um hernaðaraðstoð hjá bandamönnum sínum, nú þegar ríki við Persaflóann þurfa að verjast dróna- og eldflaugaárásum Írana, mikið til með bandarískum loftvarnakerfum. Það þýðir að rússneskar eldflaugar og drónar eiga greiðari leið í gegnum úkraínska lofthelgi. „Ég var sofandi í þessu herbergi hérna,“ segir Serhii, íbúi í Kramatorsk, við AP og bendir á gjörónýtar eigur sínar. „Ég er þegar búinn að taka aðeins til. Það er engin íbúð, eins og þið sjáið. Öll íbúðin er farin. Ég á þessa táknmynd frá ömmu minni, hún stóð þetta af sér. En það er allt saman. Það er engin íbúð, ekkert húsaskjól,“ bætir hann við. Rússar hafa um hríð notað íranska Shahed-dróna til árása í Úkraínu. Þess vegna kunna einhverjir að hugsa að væntanlega dragi úr hernaðarmætti Rússa vegna stríðsins í Íran. Svo er þó ekki, þar sem Rússar hafa tekið yfir mestalla framleiðslu þeirra árásardróna sem þeir beita gegn Úkraínu.