Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orkumála, telur nauðsynlegt að koma upp neyðarbirgðum eldsneytis hér á landi. Þetta var rætt á ríkisstjórnarfundi í dag. Engin birgðaskylda er hér á landi eins og er víða annars staðar. Jóhann Páll segir að Ísland ætti að eiga níutíu daga neyðarbirgðir, eins og tíðkast í nágrannalöndunum, og hann stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á næsta löggjafarþingi. „Ísland er eina landið í Vestur-Evrópu sem ekki heldur neyðarbirgðir eldsneytis. Í dag erum við bara með rekstrarbirgðir sem duga í 20, í mesta lagi 50 daga, miðað við venjulega notkun,“ segir Jóhann Páll. „Við viljum ekki hafa þetta svona vegna þess að við vitum að skortur á eldsneyti myndi hafa bein áhrif á löggæslu, landhelgisgæslu, ýmsa neyðarþjónustu. Þannig að það er bara löngu tímabært að taka á þessu.“ „Verðum að klára þetta sem fyrst“ Jóhann Páll segist hafa falið Umhverfis- og orkustofnun í fyrra að fara í markvissa vinnu við það. „Það var haldinn fundur með hagaðilum í gær, með birgjum og með olíufélögum, þar sem var verið að taka saman samræmdar upplýsingar og skoða næstu skref og kosti og galla við mismunandi útfærslur. Það sem er á hreinu allavega er að við verðum að klára þetta sem allra allra fyrst vegna stöðunnar og vegna óvissunnar í heiminum. Það er bara borðliggjandi.“ Næstu skref séu að halda þessari vinnu áfram og í kjölfarið leggja grunn að frumvarpi með nákvæmri útfærslu. Verður sett birgðaskylda á olíufélögin? „Ég ætla ekki að úttala mig nákvæmlega um útfærsluna núna en jú, það er í grunninn það sem þetta snýst um; að setja lög og reglur um þetta og að stjórnvöld fylgi því eftir í samstarfi við olíufélögin.“ Hver myndi eiga forgang í neyðarbirgðir? „Það er það sem þyrfti að útfæra í þessari löggjöf og í almannavarnalögum.“