Innlent | Morgunblaðið | 14.3.2026 | 22:17 Markmiðið að geta mætt áföllum Olíubirgðir eru m.a. geymdar í Örfirisey. Unnið er að frumvarpi um neyðarbirgðir eldsneytis í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. mbl.is/Ómar Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Á fundinum gafst loks tækifæri til að ná saman helstu hagsmunaaðilum og fyrirtækjum í virðikeðju olíubirgða hér á landi. Þar var rætt um hvernig kröfur um 90 daga olíubirgðir blasa við séríslenskum aðstæðum, en landið er alfarið háð m.a. innflutningi á jarðefnaeldsneyti.“ Þetta segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samtali við Morgunblaðið. Áhyggjur af birgðastöðu Í Morgunblaðinu í gær var greint frá fundi sem haldinn var í Umhverfis- og orkustofnun fyrr í vikunni þar sem rætt var um neyðarbirgðir olíu á Íslandi, en vaxandi áhyggjur eru í heiminum af birgðastöðu í olíu vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. „Á fundinum var rætt um áskoranir og hvernig við erum búin undir þessar kröfur. Fram undan er frekari vinna og samtal en markmiðið er skýrt, þ.e. hér verði olíubirgðir með þeim hætti að unnt verði að mæta áföllum í aðfangakeðju og tryggja öryggi eins framarlega og unnt er,“ segir Jóhann Páll. Það kom m.a. fram hjá innflytjendum eldsneytis á fundninum að þeir telji afhendingaröryggi ekki í hættu vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum þótt verðáhrifin séu töluverð. Þó sé full ástæða til að fylgjast náið með ástandinu. Birgðir til 50 daga Skv. heimildum Morgunblaðsins eru jafnan til birgðir af olíu til u.þ.b. 50 daga. Í minnisblaði sem ráðherrann kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær var fjallað um þessi mál og m.a. farið yfir áfallaþol hvað varðar neyðarbirgðir jarðefnaeldsneytis. Þar er rakið að alþjóðleg viðmið Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA) eru 90 dagar, sem og hvernig þær samrýmast hérlendum aðstæðum að teknu tilliti til venjulegrar notkunar hér á landi. Þá er reifað innlent regluverk og mikilvægi þess að festa í lög ákvæði sem taka á þessum málum. Stefnumótun og viðbragð Fram kemur að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafi síðan 2023 unnið að frumvarpi um neyðarbirgðir eldsneytis. Á sama tíma hafi innan Stjórnarráðsins verið unnið að margvíslegri stefnumótun og viðbragðsáætlunum til þess að undirbúa íslenskt samfélag fyrir hvers kyns hættuástand og styrkja áfallaþol mikilvægra innviða. Segir að Umhverfis- og orkustofnun hafi átt fundi með eldsneytisbirgjum hverjum fyrir sig. Vinnustofu með hagaðilum undir stjórn Umhverfis- og orkustofnunar sé nýlokið þar sem fram komu verðmætar upplýsingar og innsýn sem nýtist við frumvarpsgerðina. Þá kemur þar fram að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra muni leggja fram í samráðsgátt stjórnvalda á vormánuðum áform um lagasetningu sem miða að því að koma upp 90 daga birgðum í skrefum. Mikilvægt sé að samráði við fyrirtæki á eldsneytismarkaði og hagsmunaaðilasamtök þeirra verði haldið áfram með uppbyggilegum hætti til að móta löggjöfina og sníða af henni mögulega tæknilega vankanta enda sé innflutningur og dreifing eldsneytis og þær aðfangakeðjur sem að baki þeim standa flókinn. Samhliða innleiðingu á lagalega bindandi kröfu þurfi að innleiða eftirlitsheimildir og -úrræði fyrir lögbært eftirlitsstjórnvald auk upplýsingavettvangs stjórnvalda og hagaðila á sviði eldsneytisinnflutnings og dreifingar þess. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Markmiðið að geta mætt áföllum Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Glænýtt snjallforrit HSÍ sem gjörbreytir leiknum City missteig sig og West Ham upp úr fallsæti „Ég myndi kannski ekki klæðast þessum kjól í dag“ Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Yfir eitt þúsund árásir á dag Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Flóðið við Siglufjörð: „Þurfum að vera vel á tánum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Markmiðið að geta mætt áföllum Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Glænýtt snjallforrit HSÍ sem gjörbreytir leiknum City missteig sig og West Ham upp úr fallsæti „Ég myndi kannski ekki klæðast þessum kjól í dag“ Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir eitt þúsund árásir á dag Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar