Vinsælasta tónlistin – val fólksins er flokkur á Íslensku tónlistarverðlaununum í samstarfi við RÚV og Rás 2. Veitt voru verðlaun í flokknum í fyrsta sinn í fyrra og eins og þá gefst hlustendum færi á að kjósa á milli þess listafólks sem þótti skara fram úr árið 2025. Við samsetningu listans var streymi, sala, útvarpsspilun, tónleikaflutningur hafður til hliðsjónar og líka athygli almennings, svo sem vegna viðurkenninga fyrir tónlistarflutning hér og erlendis. Í þessu sambandi var sérstaklega horft til nýrra eða nýútkominna verka. Á listanum eru Herra Hnetusmjör, Birnir, Daniil, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm, GusGus og Laufey sem áttu öll góðu gengi að fagna árið 2025 en sú síðastnefnda hlaut þessi sömu verðlaun í fyrra. Greiddu þínum flytjanda atkvæði í appinu RÚV Stjörnur eða í kosningunni hérna fyrir neðan með því að smella á stjörnuna við rétta mynd. Birnir Birnir átti viðburðaríkt ár þar sem útgáfa plötunnar Dyrnar og afar farsælir stórtónleikar í Laugardalshöll voru áberandi. Birnir hlýtur sex tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir utan Vinsælustu tónlistina. „Þetta er mjög stórt verk, sérstaklega á hans ferli. Þetta merkilegt innlegg,“ sagði Árni Matthíasson gagnrýnandi um plötuna Dyrnar með Birni. Daniil Eins og Birnir átti rapparinn Daniil afar gjöfult ár og kom víða við í útgáfu og tónleikahaldi. Platan Brat er þriðja plata Daniils og var ein af vinsælustu plötum síðasta árs og innihélt margar vel heppnaðar gestakomur. Af gagnrýnendum að dæma er þetta hans besta verk hingað til og nánast skothelt. GusGus GusGus þarf vart að kynna. Hljómsveitin hélt afar vel heppnaða afmælisveislu í Laugardalshöll í fyrra þar sem 30 árum af stöðugri framþróun rafrænnar danstónlistar var fagnað. Eftir 12 breiðskífur og margbreytta skipan sveitarinnar virðist kjarni GusGus vera meitlaður í þeim Daníel Ágústi, Bigga Veiru og Margréti Rán og aðdáendur bíða í ofvæni eftir nýju efni sem er á leiðinni. Herra Hnetusmjör Herra Hnetusmjör hefur einfaldlega verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins síðustu ár og þó svo að síðasta plata hans Legend í leiknum hafi komið út fyrir tveimur árum eru lög af henni ein mest spiluðu lög síðasta árs á flestum listum. Lög eins og Elli Egils og Ómótstæðileg fengu að óma í gegnum árið í ófáum snjalltækjum landans. Árni Páll, eða Herra Hnetusmjör, er einnig í IceGuys sem héldu risastóra tónleika fyrir jólin og það annað árið í röð. Laufey Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir er líklegast einn mest streymdi tónlistarmaður þjóðarinnar á alþjóðavísu. Laufey var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir sex árum, fékk verðlaun fyrir vinsælustu tónlist árins í fyrra og hlaut Grammy-verðlaun í vor og það í annað skipti í röð. Laufey er með um 25 milljónir hlustenda á mánuði. Páll Óskar og Benn Hemm Hemm Fyrir tilstilli sjónvarpsþáttarins Hljómskálans hófu þeir Páll Óskar og Benni Hemm Hemm að snúa bökum saman í lagasmíðum og þótti takast það vel upp að úr varð ellefu laga plata. Hljómplatan er ein af plötum ársins þar sem einstök lög og textar hafa vakið heilmikla athygli. Nægir að nefna lagið Eitt af blómunum sem var meðal annars mest spilaða lag ársins á Rás 2. Verkefni þeirra Páls Óskars og Benna hlýtur sex tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaunum í ár til viðbótar við vinsælustu tónlistina. Greiddu þínum flytjanda atkvæði í appinu RÚV Stjörnur eða í kosningunni hérna fyrir neðan með því að smella á stjörnuna við rétta mynd.