Innlent | Morgunblaðið | 8.5.2026 | 22:15 Tónlistin hefur verið rúmlega mitt hálfa líf Björgvin Þ. Valdimarsson tónskáld til vinstri í fremri röð og Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri. Að baki þeim standa einsöngvararnir Dísella Lárusdóttir og Alxexander Jarl Þorsteinsson. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Eftir langt æfingaferli er þetta allt að smella saman; hljóðfæraleikur og söngur. Einsöngvararnir eru frábærir og ekki síður hljómsveitin og kórarnir. Að vinna með fólki á Suðurlandi í svona verkefni er mjög dýrmætt fyrir mig. Rætur mínar eru fyrir austan fjall þar sem þátttaka fólks í tónlistarstarfi er almenn,“ segir Björgvin Þ. Valdimarsson, tónskáld og kórstjóri. Tónleikar Björgvins verða í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi á morgun, laugardag, þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja tónlist hans. Auk hljómsveitarinnar, sem Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnar, koma fram einsöngvararnir Dísella Lárusdóttir, Alexander Jarl Þorsteinsson og Einar Þór Guðmundsson, Karlakór Selfoss, Karlakór Rangæinga, Sönghópurinn Öðlingar, Kirkjukór Selfosskirkju, Kirkjukór Breiðabólstaðarprestakalls og Kór Odda- og Þykkvabæjarkirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 16. Lagið varð til á stundinni „Tónlistin hefur frá unglingsárum verið mitt hálfa líf og rúmlega það,“ segir Björgvin. Hann er fæddur og uppalinn á Selfossi, en þar hófst tónlistarferill hans. Trompet var hans fyrsta hljóðfæri, en sextán ára keypti hann píanó fyrir sumarhýruna eftir sumardvöl í sveit. „Þar með var ég alveg búinn að finna hvað ég vildi í lífinu. Allt annað vék fyrir tónlistinni,“ segir Björgvin, en eftir nám gerðist hann tónlistarkennari og kórstjóri í heimabæ sínum. Guðmundur Óli stjórnar sinfóníu og kórum á æfingu. „Ég stjórnaði Samkór Selfoss í sex ár og um 1980 var mér rétt blað á kóræfingu, en þar var að finna ljóð eftir Hallgrím Jónsson frá Ljárskógum og ég var spurður hvort ég gæti samið við það lag. Ég settist við píanóið eitt kvöldið og lagið Undir Dalanna sól varð til á stundinni, alveg fyrirhafnarlaust. Það streymdi fram eins og ekkert væri. Þetta var ógleymanlegt og lagið er oft og víða sungið,“ segir Björgvin, sem frá árinu 1983 hefur starfað í Reykjavík. Skagfirsku söngsveitinni stjórnaði hann í fjórðung aldar. Frá 1997 hefur hann starfrækt í eigin nafni tónskóla í Hamrahverfi í Grafarvogi. Björgvin segist á síðari árum hafa í ríkari mæli snúið sér að tónsmíðum. Hann hefur skrifað verk fyrir kóra, einsöngvara og hljómsveit og nú stendur til að flytja þrjá kafla úr nýrri svítu þar sem Björgvin færir æskuminningar sínar frá Selfossi í tóna. Útsetningar og æfingar „Covid-tíminn, þegar svo mörgu voru takmörk sett, var mér drjúgur. Þá sat ég löngum stundum við hljóðfærið og tölvuna og samdi tónlist og útsetti. Það er heilmikið föndur þegar skrifa þarf styrkleikabreytingar og fleira inn í nóturnar og síðan að prenta út hverja rödd fyrir sig. Það var svo núna rétt fyrir áramótin sem kórarnir sem fram koma á tónleikunum fengu nótur frá mér til að æfa og svo byrjuðu æfingarnar á fullu sem hafa verið margar að undanförnu. Ég hlakka mjög til tónleikanna sem fram undan eru,“ segir Björgvin, höfundur rúmlega 100 laga sem gefin hafa verið út eða flutt í útvarpi og svo mætti lengi áfram telja verkefni frá löngum ferli. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sindri sigri frá úrvalsdeildinni Tónlistin hefur verið rúmlega mitt hálfa líf Endurkoma Grindavíkur í Seljahverfinu Yfir helmingur þjóðarinnar þarf mannúðaraðstoð Miðflokkskonur gáskafullar í Hafnarfirði Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Lars Løkke kyndir undir kóngi Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Miðflokksmenn verja myndbandið Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Sindri sigri frá úrvalsdeildinni Tónlistin hefur verið rúmlega mitt hálfa líf Endurkoma Grindavíkur í Seljahverfinu Yfir helmingur þjóðarinnar þarf mannúðaraðstoð Miðflokkskonur gáskafullar í Hafnarfirði Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Hantaveirusmit aldrei rannsökuð hérlendis Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Miðflokksmenn verja myndbandið Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka