Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér friðinn“

Read Full Article →

Menning | Tónlist | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 22:30 „Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér friðinn“ Björgvin í Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni eða Stapanum í Reykjanesbæ snemma árs 2021 í aðdraganda þess að hann fagnaði sjötugsafmæli sínu með streymistónleikum í Borgarleikhúsinu. mbl.is/Eggert Arnar Eggert Thoroddsen [email protected] Setja bókamerki „Þú ert töffari. Þú rífur kjaft. Þú ert flottur.“ Hvernig er ekki búið að lýsa Björgvini Halldórssyni í þeim hundruðum kveðja sem hafa streymt fram í ræðu sem riti eftir að þessi risi íslenskrar tónlistar féll frá þann 9. apríl síðastliðinn? Hörð skurn, kvik og glettnisleg tilsvör, gæjastælar. En þar á bak við risahjarta, barmafullt af ást, ljúf ára. Báðum fékk ég að kynnast. Ég hamaðist aðeins á Bó er ég var ungur og æstur blaðamaður, vildi sanna mig og var eðli málsins samkvæmt óheflaður. Eftir nokkurra sekúnda viðbragðsstöðu af hendi beggja inni á NASA, pírð augu eins og við værum að leika í vestra, dró Björgvin mig að sér, tók utan um mig og mælti þessar línur sem opna greinina. Perluvinir urðum við eftir þetta, hvar gagnkvæm virðing réð ríkjum fram á hinsta dag. Tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson fékk árið 2005 gullplötu fyrir plötuna Ár og öld, söngbók Björgvins Halldórssonar 1970-2005. mbl.is/Sverrir Poppstjörnubensín Arfleifð Björgvins er rík og framlag hans til íslenskrar tónlistarmenningar er síst ofmetið, vanmetið ef eitthvað. Björgvin skildi öðrum fremur hlutverk tónlistarmannsins. Hann starfaði fyrst um sinn í dægur- og afþreyingartónlistariðnaðinum og vissi að iðjusemi sem fagmennska væri það sem skilaði á endanum inn góðu karma fyrir alla á þeim vettvangi. Sjarmi og útgeislun þarf þá einnig að vera til staðar og af poppstjörnubensíni átti hann nóg alla tíð. Ég rifja gjarnan upp með sjálfum mér hvernig tillegg hans í gegnum Brimkló, hvar kántríið réð gjarnan ríkjum, olli hnussi hjá þeim sem álitu sig með „góðan smekk“ en ca. þrjátíu árum síðar var ekkert svalara en Gram Parsons og Merle Haggard, listamennirnir sem Bó hafði kynnt íslenskum lýð af kappi. Sá hlær best sem síðast hlær. Svala Björgvinsdóttir og Björgvin Halldórsson á Jólagestum 2008, en feðginin músíkölsku sungu margoft saman á tónleikum í gegnum árin. mbl.is/Eggert Blásið í lúðra Björgvin var fylginn sér, sinnti sinni köllun af einurð og vinna hans við að koma dægurtónlistinni á öndvegisstað, undirstrika það gildi sem hún sannarlega hefur, er að eilífu þakkarvert. Greinarhöfundur hefur atvinnu af því sama, að blása linnulítið í poppherlúðurinn og atfylgi okkar allra besta Björgvins við þann málstað verður að eilífu ómetanlegt. Ég hreifst þá af því þegar hann standsetti Jólagesti Björgvins, bjó til stórkostlega Vegas-sýningu þar sem hann breiddi úr sér eins og örlög hans buðu á sínum tíma. Elvis og Sinatra í einum manni og öll umgjörð og framfærsla með miklum glæsileik. Konungsbragur á öllu saman, hvernig gat það verið öðruvísi? Það snart mig síðan djúpt að sjá kveðjurnar frá börnunum hans í kjölfar andlátsins, þeirri miklu ást sem þar er lýst því að allt er þar satt og rétt. Gleymum því ekki að goðsögnin var líka maður af holdi og blóði sem sinnti sínu nánasta fólki af kostgæfni, gaf sig að þeirra áhugamálum og störfum og studdi á alla lund. Slíkt er síst sjálfgefið. Björgvin, Jóhann Helgason og Krummi Björgvinsson á tónleikum árið 2009 til heiðurs tónlistarmanninum John Lennon. mbl.is/Ómar Gott og gefandi Ég tók fjölda viðtala við Björgvin í gegnum tíðina vegna hinna og þessa verkefna. Endurkomuplata með Brimkló, dúettaplata, Hjartagosaplata o.s.frv. Öll þau samtöl voru góð bæði og gefandi og leiddust gjarnan út í nördisma gagnvart lítt þekktu kántrílistafólki, geiri sem við elskuðum báðir í botn. Ég sá svo Björgvin síðast í apóteki í Skipholti af öllum stöðum. Við heilsuðumst með virktum. Með stríðnislegum rómi, troðfullum af vinarþeli og hlýju, og að sjálfsögðu með hárnákvæmri spaugtímasetningu, sagði hann: „Ertu að ná í lyfin þín Arnar?“ Guð blessi minningu Björgvins Halldórssonar. Frétt af mbl.is Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Björn Steinar fór með himinskautum í Notre Dame Sumir brustu óforvarandis í söng Danska konan skuldar laun Guðjón gerður að heiðursborgara Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Drekar og djöfulgangur Eyðileggingarárátta listamanns Daði Freyr lýgur ekki í lögunum sínum Listahátíð er gluggi út í heim Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Danska konan skuldar laun Guðjón gerður að heiðursborgara Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Dauðvona maður birtist á skrifstofu Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Daði Freyr lýgur ekki í lögunum sínum Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Danska konan skuldar laun Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Guðjón gerður að heiðursborgara Mulholland Drive sú besta á öldinni Hvað er það versta sem þú hefur gert? Björn Steinar fór með himinskautum í Notre Dame Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Áhugaverð viðtöl Menning Berskjaldaðri heima á Íslandi Menning Ómögulegt að gera þetta svona sjaldan Menning Reynir að vera sem ósýnilegust Menning Sannleikurinn má ekki spilla góðri sögu Menning Allt yf­ir­borðs­kennd­ara í LA Mest lesið Í gær Í vikunni Björn Steinar fór með himinskautum í Notre Dame Sumir brustu óforvarandis í söng Danska konan skuldar laun Guðjón gerður að heiðursborgara Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Drekar og djöfulgangur Eyðileggingarárátta listamanns Daði Freyr lýgur ekki í lögunum sínum Listahátíð er gluggi út í heim Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Danska konan skuldar laun Guðjón gerður að heiðursborgara Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Dauðvona maður birtist á skrifstofu Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Daði Freyr lýgur ekki í lögunum sínum Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Danska konan skuldar laun Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Guðjón gerður að heiðursborgara Mulholland Drive sú besta á öldinni Hvað er það versta sem þú hefur gert? Björn Steinar fór með himinskautum í Notre Dame Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Áhugaverð viðtöl Menning Berskjaldaðri heima á Íslandi Menning Málaði trjáboli með varalitum Menning Allt yf­ir­borðs­kennd­ara í LA Menning „Maður verður einfaldlega að hlýða“ Menning Reynir að vera sem ósýnilegust

Share this article