Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.4.2026 | 19:00 | Uppfært 19:18 Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Björgvin Halldórsson. mbl.is/Golli Setja bókamerki Fjöldi fólks hefur lagt fram sín minningarorð um Björgvin Halldórsson á samfélagsmiðlum í dag. Kollegar hans úr tónlistarbransanum, fjölmiðlafólk og stjórnmálamenn hafa deilt aðdáun, minningum og samúðarkveðjum. Björgvin var bráðkvaddur á heimili sínu í dag. Frétt af mbl.is Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ „Þú söngst fyrir gersamlega alla í salnum“ Páll Óskar Hjálmtýsson rifjaði upp fallega minningu þar sem hann fylgdist með Björgvini á eigin sýningu á Hótel Íslandi 1991. „Þar kenndir þú mér dýrmæta lexíu. Þú söngst fyrir gersamlega alla í salnum, þá sem sátu uppi, niðri, til hliðar og á svölunum. Þetta var besta kennslustund sem ég hef nokkurn tíma fengið í Rokkskólanum, þaðan sem enginn útskrifast fyrr en Gullvagninn pikkar okkur upp,“ skrifaði Páll Óskar. „Þú varst ástæðan fyrir því að ég gerðist tónlistarmaður“ Eyjólfur Kristjánsson þakkaði Björgvini fyrir að styðja við bakið á sér þegar hann var að byrja í bransanum, fyrir húmorinn, öll lögin, vinskapinn, hádegisverðina með strákunum og utanlandsferðirnar. Þá þakkaði hann fyrir börn Björgvins, Sigga, Svölu og Krumma og Ragnheiði konu hans. Þau hefðu alltaf tekið honum opnum örmum. „Þú varst ástæðan fyrir því að ég gerðist tónlistarmaður og að þú hafir sungið fyrsta lagið eftir mig sem sló í gegn var skrifað í skýin. Takk fyrir að vera alltaf sannur vinur minn og takk fyrir að vera þú. Björgvin Halldórsson mun aldrei gleymast „Þó líði ár og öld“.“ „Hann hafði þetta allt“ Friðrik Ómar sagði Björgvin hafa verið fyrirmynd sína sem söngvari, framleiðandi og performer. „Hann hafði þetta allt og ótrúlega yfirsýn sem hreinlega breytti leiknum í viðburðahaldi á Íslandi. Þar fyrir utan var hann frábær sögumaður og fannst fátt skemmtilegra en að hitta kollega og tala um „bransann”. „Tölum saman!” sagði hann oft, svo áhugasamur og spenntur ef eitthvað var í burðarliðnum. Allir frasarnir, maður minn!“ skrifaði hann Friðrik. Þá lét hann fylgja myndskeið af þeim félögum að syngja lagið Can't help falling in love saman á tónleikum og segir þá báða hafa verið mikla Elvis-menn. „Blessuð sé minning goðsagnarinnar“ „Þegar kom að því að búa til „Heiðurshöll Söngvakeppninnar“ árið 2024 var Björgvin Halldórsson efstur á blaði tilnefndra. Enginn hefur sungið fleiri lög í þeirri keppni - lög sem mörg hver hafa lifað með þjóðinni í áratugi.“ skrifaði útvarpsmaðurinn Siggi Gunnars. „Hann var einstakur maður sem fyllti þau rými sem hann gekk inn í og alltaf snöggur í tilsvörum. „Nú er maður loksins búinn að meika það,” sagði hann, smellti í góm og blikkaði mig þegar hann kom í viðtal til mín á N4. Ég þá rétt um tvítugt, með stjörnur í augunum og verulega stressaður að hitta hina einu sönnu poppstjörnu!“ „Blessuð sé minning goðsagnarinnar Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar. Ég votta fjölskyldu og vinum innilega samúð.“ „Í essinu sínu að gleðja þjóðina“ Karlakórinn Fóstbræður minntist Björgvins og þakkaði gjöfult og gefandi samstarf í gegnum árin. Þá sendi kórinn Ragnheiði, börnum Björgvins og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. „Hér má sjá Bó í essinu sínu að gleðja þjóðina,“ stendur í færslunni um myndina sem með henni fylgir. „Fyrir þetta allt þökkum við.“ „Góður drengur og þjóðargersemi“ „Fallinn er frá góður drengur og þjóðargersemi,“ skrifaði útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson. „Leiðir okkar Björgvins lágu fyrst saman þegar ég var að vinna á skemmtistaðnum Ypsílon í Kópavogi 1984 og þá komu þeir HLH kappar að skemmta reglulega Halli, Laddi og Helgi eins og Björgvin hét að millinafni.“ Frá þeim tíma hitti ég hann oft en hann síðan réð mig í vinnu á Bylgjunni 1995 en hann var þá dagskrárstjóri. Við höfum alltaf náð vel saman og það er mikill missir af honum og það fyrir auðvitað þjóðina alla. Fjölskyldu hans vil ég senda mínar dýpstu samúðarkveðjur.“ „Strákurinn í Bendix“ „Björgvin Halldórsson er látinn og mér finnst það vont,“ skrifaði myndlistarmaðurinn Jón Óskar. „Strákurinn í Bendix sem spilaði fyrir okkur Dóru og Herdísi í Garðahreppi. Í gærkvöld fór ég að spila Bjögga og Brimkló sem ég hef ekki gert lengi. Í morgun vakna ég og hann er dáinn. Elsku drengurinn, mikið þótti mér vænt um hann. Samúðarkveðjur til allra.“ „Geisluðu af honum persónutöfrarnir“ „Allt frá því Bjöggi sló fyrst í gegn fyrir hátt í 60 árum hefur stjarna hans skinið skært,“ skrifaði Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Björgvin var sérlega stoltur Hafnfirðingur. Honum þótti innilega vænt um bæinn sinn og var gaman að heyra hann rifja upp sögur frá uppvaxtarárum sínum í Hafnarfirði. „Litlu jólin“ sem hann hefur haldið í Bæjarbíói á Þorláksmessukvöld undanfarin ár voru einstök, þar sem hann, oftast með börnum sínum, söng inn jólin á sinn hlýja og fallega máta.“ Einnig hefði hann frá upphafi bæjarhátíðar Hafnfirðinga, „Hjarta Hafnarfjarðar“, opnað hátíðina með tónleikum og lýst því við það tilefni hve ánægður hann væri með þróun tónlistarmenningar bæjarins. „Framlag Björgvins verður seint fullþakkað en Hafnarfjarðarbær heiðraði Björgvin og útnefndi hann sem bæjarlistamann Hafnarfjarðar árið 2018. Ári síðar afhjúpaði hann fyrstu stjörnuna í gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó, stjörnu sem var tileinkuð honum. Hann var innilega þakklátur og stoltur af hvoru tveggja.“ „Björgvins verður sárt saknað en lögin hans munu lifa með okkur. Ég mun ætíð minnast Björgvins með mikilli hlýju. Það var alltaf gaman að hitta hann, hvort sem var á förnum vegi eða á tónlistarviðburðum enda geisluðu af honum persónutöfrarnir.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KA - Valur, staðan er 23:24 Þriggja ára skilorð fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng Annar Íslendingur í stórliðið Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forðastu fasteignasalahálsmálið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holur myndast víða á vegum „Hér er því farið með fleipur“ Fengu 155 tonn í róðri um páskana Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » KA - Valur, staðan er 23:24 Þriggja ára skilorð fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng Annar Íslendingur í stórliðið Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forðastu fasteignasalahálsmálið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Telur landlækni vera á villigötum „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article