Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segja eignar­haldið standa Póstinum fyrir þrifum

Read Full Article →

Stjórn og stjórnendur Íslandspósts telja að hið opinbera þurfi ekki að vera eigandi félagsins svo það geti framfylgt skyldum sínum í póstþjónustu. Í ávarpi forstjóra og stjórnarformanns í nýrri ársskýrslu segir að eignarhald ríkisins standi félaginu fyrir þrifum. Sjá einnig Sala hluta­bréfa hífir Póstinn yfir núllið Á aðalfundi Íslandspósts á síðasta ári var kjörin „ópólitísk stjórn“, út frá nýjum reglum fjármálaráðherra um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum. Stjórn Póstsins tók miklum breytingum en fjórir af fimm stjórnarmönnum komu nýir inn í stjórnina. Pétur Már Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Nox Medical, tók við stjórnarformennsku. Sjá einnig Skipta út flestum stjórnar­mönnum Póstsins og Isavia Í ávarpi Péturs Más og Þórhildar Ólafar Helgadóttur, forstjóra Póstsins, kemur fram að stjórn félagsins hafi fengið ráðgjafa til að aðstoða sig við mótun stefnu póstmála til framtíðar. Út frá þeirri vinnu hafi verið mótaðar fjórar lykilspurningar. Ein spurningin snýr að því hvort núverandi eignarhald standi Íslandspósti fyrir þrifum. „Að mati stjórnar og stjórnenda félagsins er svarið einfaldlega já. Ef félagið á að geta vaxið og dafnað og aukið verðgildi sitt, er óhjákvæmilegt að slíkur vöxtur eigi sér stað á markaði þar sem veruleg samkeppni ríkir. Eigandinn þarf því að gera upp hug sinn og meta þátttöku sína í fyrirtækjarekstri á samkeppnismörkuðum.“ Þá sé það mat stjórnar og stjórnenda að hið opinbera þurfi ekki að vera eigandi félags sem rekur samning ríkisins við alþjóðapóstsamfélagið og uppfyllir lagaramma um gæði póstþjónustu á Íslandi. Sjá einnig Tæki­­­færi til einka­­­væðingar: Ís­lands­póstur Ríkisfyrirtækið segir að það sé eiganda félagsins að svara því hvort ríkið eigi að starfa áfram á virkum póst- og flutningsmarkaði. „Þessi spurning er af pólitískum toga og snýr að því á hvaða sviðum hið opinbera tekur þátt í starfsemi sem er að stórum hluta rekin á forsendum frjálsrar samkeppni.“ Í svari við spurningu um hvort ríkið ætli ríkið að vera hluti af alþjóðapóstsamfélaginu, segir: „Það væri óneitanlega gríðarstór breyting ef íslenska ríkið myndi ákveða að segja sig úr samstarfi 197 þjóða sem tryggir öruggar póstsendingar til og frá Íslandi. Mat stjórnar og stjórnenda Póstsins er því það að ríkið ætti að halda áfram að vera hluti af alþjóðapóstsamfélaginu.“ Í ávarpinu er bent á að samkvæmt útnefningu íslenska ríkisins sé Pósturinn alþjónustuaðili og honum beri samkvæmt lögum að halda uppi póstþjónustu um land allt. Þjónusta Póstsins nái einnig út fyrir landsteinana því félagið rekur samning ríkisins við alþjóðapóstsamfélagið, Universal Postal Union (UPU), og er þar með hluti af alþjóðlegri keðju póstfyrirtækja. Fyrir hönd ríkisins sér Pósturinn um að uppfylla skilyrði sem gerð eru um örugga póstflutninga til og frá landinu. „Kröfur til rekstrar Póstsins eru miklar. Viðskiptavinir kalla eftir hagkvæmum lausnum, fjölbreyttu vöruúrvali og lægra verði á sama tíma og sendingum fer fækkandi. Auk þess á Pósturinn að skila hagnaði og viðunandi arðsemi á hlutafé eigandans. Hagræðing og bætt þjónusta hafa verið lykilorð í rekstrinum og mikil áhersla hefur verið lögð á stöðugar umbætur og viðskipta- og vöruþróun til að mæta auknum kröfum og síbreytilegu starfsumhverfi þar sem samkeppni hefur líka aukist til muna.“

Share this article