Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gestir ferjaðir á stórtónleika íslenskrar stórstjörnu í Kórnum

Read Full Article →

Tónlistarkonan Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, á laugardags- og sunnudagskvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld. Sindri Ástmarsson, verkefnastjóri hjá Senu, segir mikinn undirbúning á bak við svo stóra tónleika. „Hérna eru mörg hundruð hátalarar, mörg hundruð fermetrar af LED-skjáum, mörg þúsund stólar og 500 manns í vinnu að gera allt tilbúið,“ segir Sindri. Gestir eru hvattir til að kynna sér fyrirkomulagið vel á heimasíðu Senu. Lokað verður fyrir alla umferð að Kórnum og sérstakar sætaferðir fyrir tónleikagesti frá Smáralind, sem verður eina leiðin til að komast að húsinu. Þeir sem koma með leigubíl þurfa að stoppa lengra frá. Ekki verður hægt að koma á einkabíl að Kórnum og engin bílastæði innan götulokana. „Við þurfum að taka yfir allt hverfið í raun og veru,“ segir Sindri. „Við erum búin að gera allt til að tryggja að bæði aðkoma gesta og fráflæði verði sem allra best.“ Um sextán þúsund manns mæta á tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina. Undirbúningur hófst fyrir löngu og mörg hundruð manns koma að verkefninu. Tónleikagestir verða ferjaðir frá Smáralind að Kórnum og lokað verður fyrir almenna umferð þangað. Laufey hefur verið á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Evrópu undanfarna mánuði. Hún kemur til landsins með átta gáma af búnaði sem settur verður upp fyrir tónleikana, til viðbótar við þann búnað sem þegar hefur verið settur upp í Kórnum. 15 tonn af tækjum hengd upp Ágúst Ingi Stefánsson, verkefnastjóri hjá Lúxor, segir tækjabúnaðinn ekkert smáræði. „Þetta eru um fimmtán tonn sem við hengjum upp, sem er þá hljóðkerfi, ljós, LED-skjáir, kaplar,“ segir Ágúst Ingi. Samanlögð lengd á snúrum og köplum er tugir kílómetra. „Okkur reiknaðist til að þetta væri svona sirka upp á Akranes, í vegalengd.“ Um sextán þúsund manns mæta á tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina. Undirbúningur hófst fyrir löngu og mörg hundruð manns koma að verkefninu. Tónleikagestir verða ferjaðir frá Smáralind að Kórnum og lokað verður fyrir almenna umferð þangað. Með fleiri hlustendur en allir aðrir íslenskir tónlistarmenn Laufey er sá íslenski tónlistarmaður sem hefur mesta hlustun á streymisveitum. Stórstjarna á heimsmælikvarða, segir Árni Matthíasson tónlistarsérfræðingur. „Hún er komin á þann stað að þú ert í leigubíl á Filippseyjum og leigubílstjórinn er að hlusta á Laufey. Hún er bara orðin alþjóðleg stjarna, það er bara ekki flóknara en það.“ Um sextán þúsund manns mæta á tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina. Undirbúningur hófst fyrir löngu og mörg hundruð manns koma að verkefninu. Tónleikagestir verða ferjaðir frá Smáralind að Kórnum og lokað verður fyrir almenna umferð þangað. Ef við skoðum mánaðarlega hlustendur heimsfrægra íslenskra tónlistarmanna eins og Sigur Rósar, Bjarkar, Of Monsters and Men og Kaleo, þá ber Laufey höfuð og herðar yfir þau öll, með mörgum milljónum fleiri hlustendur. Varð fyrst fræg á samfélagsmiðlum í covid Laufey skaust hratt upp á stjörnuhimininn eftir með fyrstu smáskífu sinni og vakti athygli á samfélagsmiðlum á covid-tímabilinu. Síðan þá hefur hún tvisvar unnið til Grammy-verðlauna og um áramótin fékk hún hina íslensku fálkaorðu, yngst orðuhafa. „Það er ekki oft sem við höldum svona stóra tónleika á Íslandi,“ segir Sindri. „Það er ekki oft sem við fáum svona stóra stjörnu til landsins, þó hún sé íslensk, þá er hún akkúrat á hápunkti ferilsins.“ Um sextán þúsund manns mæta á tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina. Undirbúningur hófst fyrir löngu og mörg hundruð manns koma að verkefninu. Tónleikagestir verða ferjaðir frá Smáralind að Kórnum og lokað verður fyrir almenna umferð þangað.

Share this article