Laufey heillaði alla upp úr skónum á tónleikum sínum í gærkvöldi segir Ísleifur Þórhallsson framkvæmdastjóri Senu Life. Skipulagðar sætaferðir frá Kórnum í Smáralind gengu vel og um klukkutíma tók að tæma húsið. Undirbúningur er þegar hafinn í Kórnum fyrir seinni tónleika Laufeyjar í kvöld. „Maður hefur bara sjaldan upplifað aðra eins stemningu og allt gekk vel og fólk fór bara út með tár í augunum sýndist mér í stórum stíl,“ segir Ísleifur, „það eitthvað svo mikil ást á Laufeyju og hún er orðin svo stór og þetta voru hennar heimkomutónleikar. Og fólk var klætt eins og hún og maður bara fann spennuna í loftinu. Svo mætti hún á svið og færði okkur bara ótrúlega tónleika. Svona rifjaðist upp fyrir öllum held ég af hverju hún er orðin súperstjarna. Hún bara heillar alla upp úr skónum og fer beint í hjartað á fólki og þessi lög fara beint í hjartað á öllum. Og þetta var bara svo ótrúlega vel gert hjá þeim og öllum að það voru allir í skýjunum.“ Maður hefur sjaldan upplifað aðra eins stemningu, segir tónleikahaldari um tónleika Laufeyjar í Kórnum í gærkvöldi. Vel gekk að flytja tónleikagesti með strætó. Seinni tónleikar Laufeyjar verða í kvöld. Seinni tónleikar Laufeyjar verða í kvöld og þá verður líka lokað fyrir umferð í kringum Kórinn og strætisvagnar flytja aðra átta þúsund tónleikagesti til og frá Kórnum. Flutningarnir gengu vel eftir tónleikana í gærkvöldi, segir Ísleifur. Strætisvagnar biðu þá í röðum fyrir utan og fólk var þolinmótt, segir hann „Þetta rann bara mjög smurt og ég held að það hafi tekið eitthvað 45 mínútur, eitthvað svoleiðis, klukkutíma, bara að tæma húsið.“ Veist þú hvort að stórstjarnan Laufey hefur tíma til að dvelja eitthvað áfram á Íslandi eftir þessa tónleika? „Ég held að allt hafi verið skipulagt í þeim tilgangi að hún fengi nokkra daga á undan og nokkra daga á eftir til að vera með fjölskyldunni. Ég held að þetta hafi allt verið gert það. Og útlendingarnir í hennari hópi, það koma náttúrulega 60 manns til landsins, þau voru náttúrulega mjög spennt að koma til heimalandsins hennar. Og það er óhætt að segja að þau séu í skýjunum. Þau eru rosalega ánægð með þetta allt saman. Og ég held að Laufey hafi bara verið mjög hrærð yfir viðtökunum í gær.“