Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikil spenna fyrir tónleikum Laufeyjar: „Ég elska hana“

Read Full Article →

Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gestir voru ferjaðir með Strætó frá Smáralind að Kórnum, þar sem lokað hefur verið fyrir almenna umferð um svæðið meðan á tónleikunum stendur. Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, í kvöld og annað kvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld. Tónleikagestir prúðbúnir með allskyns föndur í farteskinu Fólk tók að streyma í Kórinn á sjötta tímanum og vakti klæðaburður tónleikagesta athygli. Ungar stúlkur voru klæddar í fallega kjóla í anda Laufeyjar, með alls kyns föndur, bæði töskur og málverk, í farteskinu. Venja hefur verið fyrir því á tónleikum Laufeyjar að tónleikagestir mæti prúðbúnir og att kappi um titilinn Best klæddi tónleikagesturinn. Laufey hefur haft þá venju að heiðra þann sem er talinn í glæsilegasta fatnaðinum. Agnes María Pétursdóttir var mætt snemma á tónleikana með mömmu sinni, Sigrúnu Ósk Ólafsdóttur. Agnes segist mikill aðdáandi Laufeyjar. Hún hafði meðferðis bláa tösku sem hún föndraði eftir mynd af umslagi plötu Laufeyjar, A matter of time. „Ég elska hana,“ sagði Agnes í samtali við Þórdísi Arnljótsdóttur, fréttamann. „Hún var búin að biðja um þetta í fermingargjöf áður en það var búið að ákveða tónleikana,“ sagði Sigrún Ósk. Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gert er ráð fyrir um sextán þúsund gestum á tvenna tónleika hennar um helgina. Spennan í loftinu áþreifanleg Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, segir allt hafa gengið að óskum, bæði við skipulagninguna og að koma fólki á svæðið. „Við erum búin að eiga heima hérna í Kórnum síðan á mánudaginn og búin að vera að skipuleggja þetta í tvö ár, síðan hún spilaði Eldborg og hún hefur stækkað svolítið mikið síðan þá.“ Spennan í loftinu sé áþreifanleg. „Þú sérð þau eru öll í fötunum og hún er búin að búa til einhvern ævintýraheim. Þetta náttúrulega seldist strax upp þannig þau eru búin að sitja á miðunum síðan í september. Og þú finnur spennu í loftinu, Laufey er komin heim og er að fara að stíga á svið klukkan níu,“ segir Ísleifur, og bætir við. „Þeir sem hafa stigið á svið hér eru Justin Bieber, Justin Timberlake og Andrea Bocelli. Þannig að við eigum orðið súperstjörnu og þetta verður aldeilis skemmtilegt í kvöld.“

Share this article