Um það bil 32 þúsund hermenn frá fjórtán löndum taka þátt í, Cold Response, heræfingu Atlantshafsbandalagsins í norðanverðum Noregi og Finnlandi sem hófst 9. mars og stendur til þess 19. Ætlunin er að láta reyna á bardagagetu hermannanna, um það bil hundrað herflugvéla og þrjátíu herskipa ríkja bandalagsins, við erfiðar aðstæður á norðurslóðum, nokkur hundruð kílómetra frá landamærunum að Rússlandi. Þar geta skipst á fimbulkuldi og mildara vætuveður að sögn skipuleggjanda. Norski herinn segir Rússa fylgjast grannt með æfingunni, líkt og búist hafði verið við. Þeir hafa boðað eigin eldflaugatilraunir nærri Barentshafi meðan á æfingunni stendur. Norskar orrustuþotur voru tvisvar sendar á loft fyrstu daga æfingarinnar, sem hófst 9. mars, til að hafa afskipti af rússneskum þotum undan norðurströnd Noregs. Ofurstinn Hans Martin Steiro rifjar upp að rússneskra flugvéla hafi á liðnum árum orðið vart þrjátíu til fjörutíu sinnum innan alþjóðlegrar lofthelgi við Noreg. Heræfingin sé í anda þess að um raunverulegt stríðsástand væri að ræða og Steiro segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATÓ sé reiðubúið til átaka.