Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir samhæfingu öryggis- og varnarmála á milli bandalagsþjóða Atlantshafsbandalagsins afar mikilvæga, sér í lagi í ljósi viðvarandi ógnar Rússlands í Úkraínu. Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force – JEF) í Helsinki í vikunni. Fundinn sóttu leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ásamt forsætisráðherrum Bretlands og Hollands. Forseti Úkraínu og forsætisráðherra Kanada fluttu ávörp. „Þetta eru þjóðir sem eru að samhæfa sínar öryggis- og varnaraðgerðir á svæðinu vegna þess að Eystrasaltið, Norður-Atlantshafið og norðurslóðir spila þarna svolítið stórt hlutverk saman,“ segir Kristrún. „Allir eru meðvitaðir um að sú ógn sem núna er verið að verjast austanmegin í gegnum Úkraínu er Rússland — hún getur hæglega haft áhrif hér norðar þar sem við búum ef Rússland kemur sterkt út úr þessu stríði.“ Kristrún segir alvarlegri undirtón gæta í viðræðum á milli ríkja á fundunum en oft áður. Stærsta áskorunin fyrir Íslendinga sé að koma fólki í skilning um breytta heimsmynd án þess að skjóta því skelk í bringu. „Við höfum ákveðna sérstöðu varðandi staðsetningu okkar í Norður-Atlantshafi sem aðrir gætu séð hagsmuni af því að nýta. Við verðum að geta staðið jarðtengd og skynsöm og útskýrt hvaða styrkleika við höfum og hvað við þurfum hjálp með án þess þó að hræða fólk í þessu ástandi.“ Ísland verður gestgjafi í fyrsta sinn á næsta ári Á fundinum í Finnlandi voru meðal annars teknar ákvarðanir um upptakt að næsta leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í sumar. „Það voru teknar ákvarðanir um að við myndum vinna saman í ákveðnum þáttum í aðdraganda NATO-fundarins í Ankara í Tyrklandi. Það eru ákveðin undirmarkmið sem verður unnið að hjá NATO og þessar þjóðir munu samhæfa sig í þeim málum.“ „Við erum líka að hjálpast við að kortleggja varnarviðbrögð á norðurslóðum og nýtum þessa fundi til að segja þessum þjóðum frá því hvernig við erum að standa okkur, hvernig varnar- og öryggismál á Íslandi virka og til að fá aðstoð við það, til dæmis í loftrýmisgæslu og annað hérna.“ Á fundinum var einnig ákveðið að forsætisráðherra Íslands yrði gestgjafi leiðtogafundar JEF-ríkjanna á næsta ári, í fyrsta sinn. Kristrún segir tækifæri felast í því að Ísland taki slíkt hlutverk að sér. „Það verður mikill styrkleiki fyrir okkur að sýna hvernig íslenska módelið í varnarmálum virkar og tryggja það að fólk sýni því skilning að við séum með okkar leið og hún er svolítið óhefðbundin.“