- What: Iceland's Foreign Minister discusses the increased emphasis on the Arctic region by NATO.
- Impact: Increased activity in the Keflavik defense area is expected due to NATO's focus on the northern regions.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 20:39 Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist Frá ráðherrafundinum sem fram fór í Brussel í dag. AFP Gera má ráð fyrir að meira álag verði á varnarsvæðið í Keflavík næstu misseri vegna aukinnar áherslu Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum. Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sem sótti varnarmálaráðherrafund NATO í dag. Á fundinum voru málefni Norðurslóða ofarlega á blaði en í gær tilkynnti NATO um nýtt verkefni á norðurslóðum til að efla vöktun og eftirlit á svæðinu. Aðgerðin nefnist Arctic Sentry. Frétt af mbl.is Vilja efla öryggi á norðurslóðum Mikilvægt að fleiri ríki beini sónum að norðrinu „Á þessu rúma ári sem ég hef verið utanríkisráðherra hef ég verið að undirstrika mikilvægi þess að tryggja öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum og það er meðal annars verið að gera það með Arctic Sentry sem er mjög mikilvægt skref í því að tryggja öryggi á þessu mikilvæga svæði,“ segir Þorgerður. „Með þessu eru önnur bandalagsríki líka að fókusera með okkur á þetta svæði, sem skiptir máli því að Rússarnir, þótt þeir séu á fullu í Úkraínu, eru ekkert búnir að missa fókusinn á Norður-Atlantshaf eða norðurslóðir. Svo eru þeir auðvitað í mikilli samvinnu við Kínverja og eru í rauninni orðnir háðir Kínverjum með tækni og annað slíkt.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti varnarmálaráðherrafund NATO í dag. mbl.is/Eyþór Umsvif aukast Hvaða beinu breytingar verða á því hvernig öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum er háttað? „Það á náttúrulega eftir að halda áfram að þróa Arctic Sentry og varnarmálaherforingjarnir eiga eftir að skoða þetta betur. En það er ljóst að þetta mun þýða aukin umsvif á þessu svæði í formi eftirlits, æfinga eins og Arctic Challenge og aðgerða á þessu svæði,“ segir ráðherrann. „Það mun þýða það líka að við Íslendingar munum sem fyrr bjóða upp á okkar stuðning sem gistiríkjaþjóð og það er svona okkar meginhlutverk. Auk staðsetningar landsins okkar þá er þetta ekki síst okkar framlag, að vera gistiríki, að sinna eftirliti og skipulagi og stjórnun æfinga og aðgerða á svæðinu.“ Veitum aðstoð til að fá aðstoð Gerirðu ráð fyrir að þetta komi til með að auka álagið á varnarsvæðið í Keflavík? „Já, ég á von á því og við þurfum með því alveg skýrt að uppfylla okkar skuldbindingar. Það voru mjög afmarkaðar og skýrar ákvarðanir teknar bæði á leiðtogafundinum í Washington 2024 en líka í Haag á síðasta ári og við Íslendingar þurfum að standa við okkar hlut í þeim skuldbindingum og það gerum við,“ segir Þorgerður og bætir við „Við þurfum að gera ráð fyrir því að þetta aukist og við þurfum að vera í stakk búin að vera þessi verðugi bandamaður. Við komum öðrum til hjálpar meðal annars því við sjáum fram á það að ef eitthvað gerist á okkar svæði þá göngum við út frá því að aðild innan NATO skili sér í því að við fáum líka aðstoð ef þörf krefur.“ Frétt af mbl.is Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands Brentford – Arsenal, staðan er 0:0 „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Endukoma í fyrsta leik Arons Átta ára dómur staðfestur í stóra metamfetamínmálinu Myndbönd af heimaskrifstofu Epsteins Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Nýtt merki undir Tenerife: Vísindaráð kallað saman 50-60 metra rof á Reynisfjöru „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Brentford – Arsenal, staðan er 0:0 „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Endukoma í fyrsta leik Arons Átta ára dómur staðfestur í stóra metamfetamínmálinu Myndbönd af heimaskrifstofu Epsteins Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn „Við tökum þessi orð mjög alvarlega“ Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Kyndir undir kreppu á Kúbu Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson