- What: Russia has threatened countermeasures if Greenland is militarized by NATO.
- Impact: Increased tensions in the Arctic region.
Rússar grípa til „viðeigandi gagnaðgerða“ ef hervæða á Grænland og ógna Rússlandi, sagði Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í rússneska þinginu, Dúmunni, á fimmtudag. Hann var þar spurður út í Arctic Sentry, eða Varðstöðu á norðurslóðum, aðgerð sem NATO-ríkin tilkynntu um á miðvikudag og beinist að því að efla varnir og fælingarmátt á norðurslóðum. „Auðvitað, ef Grænland verður hervætt, ef þar verður byggður um hermáttur sem beinist að Rússlandi, munum við grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða, þar á meðal hernaðar-tæknilegra ráðstafana. Engu að síður er meginafstaða okkar sú að norðurslóðirnar eigi að vera svæði friðar og samvinnu,“ sagði Lavrov í þinginu . Ræðan var vélþýdd úr rússnesku. Honum var „hræsni“ Vesturveldanna hugleikin – að réttur Grænlendinga til sjálfsstjórnar væri viðurkenndur en rétti þjóða Krímskaga, Donbass og „Nýrússlands“ til að ákveða örlög sín í einingu með Rússlandi væri enn hafnað. Í viðtali við RIA Novosti bætti Lavrov því við að þessi nýjasta vending breytti í raun engu því það hefði lengi verið stefna NATO að breyta norðurslóðum í átakasvæði og að draga yfirráð Rússlands yfir norðursiglingaleiðinni, sem liggur norður af Rússlandi, í efa. En í umfjöllun rússneskra miðla er því ekki síst stillt upp að aðgerðin snúist minna um Rússland en Donald Trump. Evrópuríki hafi orðið að bregðast við með einhverjum hætti eftir yfirlýsingar hans um að hann vilji yfirráð yfir Grænlandi. Varðstaða á norðurslóðum snúist um það, öðru fremur.