- What: The Prime Ministers of Iceland and Norway met to discuss security matters, including cooperation in the Arctic region.
- Impact: The discussion focused on the importance of collaboration on defense and security issues, particularly regarding the GIUK gap and potential Russian movements.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði með Jónasi Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í dag. Þau ræddu meðal annars stöðuna á norðurslóðum og mikilvægi samstarfs þjóðanna um varnar- og öryggismál. „Við höfum bæði mikla hagsmuni af stöðunni hérna á norðurslóðum,“ segir Kristrún. „Það hafa verið miklar breytingar og spenna í umræðunni í upphafi árs um þetta svæði. Það hefur líka orðið mikil breyting í umræðu varðandi varnar- og öryggismál.“ Hún segir samstarf Íslands og Noregs í góðum farvegi. Bæði lönd hafi sameiginlegra hagsmuna að gæta á sviði öryggis- og varnarmála og þurfi til að mynda að standa vörð um Giuk-hliðið og fylgjast grannt með mögulegum hreyfingum Rússlands. „Ég myndi segja að ef eitthvað er þá er Noregur það land sem hefur líkustu hagsmuni og okkar þegar kemur að öryggismálum,“ segir Kristrún. EES-samningurinn í forgangi Á fundi sínum með Störe var Kristrún einnig spurð um mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu og þjóðaratkvæðagreiðslu um þær. Kristrún segir áhuga Norðmanna á afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB ekki koma sér á óvart. „Við ræddum þetta stuttlega en fyrst og fremst um mikilvægi þess og ég sagði að fyrra bragði að við höldum EES-samningnum virkum sama hvernig fer. Vegna þess að ef það kemur já út úr þessari atkvæðagreiðslu okkar megin, þá er samt enn þá eftir að taka ákvörðun um fulla aðild. Ef það kemur nei út úr því þurfum við að treysta á það að EES-samningurinn sé góður og virkur. Við vinnum að því með Norðmönnum,“ segir Kristrún.