Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Forsætisráðherra segir Íslendinga óhrædda andspænis róti í alþjóðakerfinu

Read Full Article →

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi. Hún segir Ísland hafa miklar áhyggjur af Grænlandi en sé tilbúið að nýta sér þá auknu athygli sem heimsbyggðin sýnir Norðurslóðum í kjölfarið á ásælni Bandaríkjaforseta í landið. Þetta sagði hún á blaðamannafundi með forsætisráðherrum Noregs, Danmerkur, Kanada, Finnlands og Svíþjóðar í Osló í dag. Þar fundaði þessi hópur um samstarf ríkjanna og skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu um að dýpka enn frekar samband þeirra í milli. „Ég tel að það séu margir, ekki bara leiðtogar, heldur þjóðir víða um heim, sem eru þakklátir fyrir þá forystu sem Kanada hefur sýnt undanfarna mánuði. Mér finnst það hafa verið tóm sem þurfti að fylla þegar kemur að því að vera leiðandi á alþjóðasviðinu,“ sagði Kristrún. Mjög fast er kveðið á um stuðning ríkjanna við aukinn fókus NATÓ á norðurslóðum og segjast þau öll mjög áfram um að auka hann enn frekar og gæta að þeim samfélögum frumbyggja sem þar búa og verjast áhrifum loftslagsbreytinga á þennan heimshluta. Einnig er stuðningur við Úkraínu kyrfilega áréttaður. Ekki er minnst á Grænland í yfirlýsingu ráðherranna en þó voru málefni landsins ofarlega á baugi á blaðamannafundi þeirra. Kristrún Frostadóttir segir að Íslendingar séu áhyggjufullir vegna ásælni Bandaríkjaforseta í landið, en þó ekki hræddir. „Ísland hefur sannarlega fundið fyrir pressunni og fundið þessa auknu hreyfingu í kringum okkur. Og við höfum haft áhyggjur af Grænlandi og erum augljóslega mjög áhyggjufull yfir stöðunni almennt í Evrópu hvað Úkraínu varðar. En við erum ekki hrædd. Við horfum einnig á þetta sem leið til þess að hrista upp í bandalögum okkar á þann hátt að, þið vitið, þó að við séum ekki að loka á einhvern einn, þá erum við bara að víkka út skipulag okkar.“ Hún segir að áhugi heimsbyggðarinnar á Norðurslóðum hafi haft sumt gott í för með sér. „En fátt er svo með öllu illt hvað þetta varðar. Fókusinn hjá NATÓ, til dæmis, hefur færst norðurávið. Umræðan um öryggi á Norðurslóðum, tækifæri á Norðurslóðum, samþættingu viðskiptahagsmuna er meira áríðandi núna. Og Ísland ætlar að verða stór leikandi á þessu sviði.“ „Þess vegna fögnum við öllu samstarfi og mér finnst þessi hópur sýna að það sé hægt að mæta og sýna stillingu á erfiðum tímum sem þessum. Það þarf ekki alltaf að bregðast við strax.“

Share this article