Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 7:00 Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Morgunblaðið/Eyþór Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Heimsmynd okkar er breytt og á meðan við ræðum hlutina heldur heimurinn áfram að snúast. Á síðustu misserum höfum við séð hvernig grundvallargildi alþjóðasamfélagsins – lýðræði, frelsi og mannréttindi – hafa átt undir högg að sækja. Friðhelgi landamæra er brotin, borgir eru sprengdar og börn grafin undan rústum. Alþjóðalög eru virt að vettugi. Viðskipti eru notuð sem vopn. Á sama tíma hefur spenna í alþjóðakerfinu aukist og samstaða ríkja veikst. Þessi þróun snertir Ísland beint, þrátt fyrir smæð okkar og landfræðilega legu. Innrás Rússlands í Úkraínu heldur áfram að marka öryggisumhverfi Evrópu. Þar er ekki aðeins um að ræða stríð milli ríkja heldur atlögu að þeim reglum og gildum sem alþjóðakerfið er byggt á. Við vitum af rússneskum kafbátum á siglingu umhverfis okkur og okkar lykilinnviði í hafinu. Breskir ráðamenn greindu frá slíkri umferð á Norður-Atlantshafi bara í liðinni viku. Stuðningur okkar við Úkraínu er því ekki aðeins siðferðileg afstaða – hann er liður í að tryggja okkar eigið öryggi og stöðu í samfélagi þjóðanna. Getur orðið viðvarandi ástand Á sama tíma hefur óvissa í samskiptum helstu bandalagsríkja aukist. Samband Evrópu og Bandaríkjanna, sem lengi hefur verið burðarás í alþjóðakerfinu, hefur veikst og orðið ófyrirsjáanlegra. Sitjandi Bandaríkjastjórn hefur haft uppi stórar yfirlýsingar um að hverfa eigi frá þeim grunnþætti í utanríkisstefnu þeirra að reiða sig á bandalög. Þannig hefur tollamúrum verið beitt sem refsivendi, jafnvel gegn nánustu vinaþjóðum. Þetta ástand getur allt eins orðið viðvarandi, en ekki einsdæmi. Íslenskt samfélag hefur ekki farið varhluta af þessum breytingum. Nýleg könnun utanríkisráðuneytisins sýnir að 84% landsmanna hafa meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála en fyrir ári og 71% hefur miklar áhyggjur. Þrátt fyrir að 88% upplifi Ísland sem öruggt land má greina ákveðna tilhneigingu til að líta á ástandið sem tímabundið og halda í þá von að allt verði sem áður. Slík nálgun er þó varasöm. Við stöndum frammi fyrir varanlegum breytingum á alþjóðakerfinu sem krefjast skýrra viðbragða og stefnumótunar. Eigum ekki að liggja lágt Við þessar aðstæður hefur komið fram það sjónarmiðið í íslenskri stjórnmálaumræðu að Ísland eigi að liggja lágt. Fara með veggjum. Ekki hafa sig of mikið í frammi. En Norðurlandaþjóðirnar til að mynda hafa alls ekki valið þá leið. Finnland og Svíþjóð gengu í NATO. Danmörk hélt þjóðaratkvæðagreiðslu um varnarstefnu Evrópusambandsins og almenningur ákvað að hverfa frá undanþágu sem Danir höfðu fengið um herskyldu. Danskir ráðamenn hafa sjálfir sagt að erfitt hefði verið að standast þrýstinginn þegar Grænland varð miðpunktur alþjóðakerfisins, ef þeir hefðu ekki getað hallað sér að samstöðublokkinni sem ESB-aðildin tryggir þeim. Við hljótum líka að vilja læra af Bretlandi, en Brexit er víti til varnaðar um þann kostnað sem fylgir því að brenna brýr til meginlandsins. Reynsla síðustu áratuga sýnir að djarfar ákvarðanir í alþjóðasamstarfi hafa reynst Íslandi farsælar. Aðild að Atlantshafsbandalaginu, þátttaka í EFTA og EES-samningurinn eru dæmi um stefnumótandi skref sem hafa styrkt stöðu landsins. Þetta voru umdeildar ákvarðanir á sínum tíma, en þeir leiðtogar sem tóku þær höfðu skýra sýn um hvar hagsmunum þjóðarinnar var best borgið. Sagan hefur dæmt þessar hugrökku ákvarðanir vel. Tækifæri sem kemur ekki aftur Við stöndum á krossgötum þar sem meta þarf hvernig best sé að tryggja öryggi, efnahagslega velferð og alþjóðlega stöðu Íslands til framtíðar. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er hluti af því ferli. Hún snýst ekki um að taka afstöðu til aðildar í dag. Hún snýst um að gefa þjóðinni tækifæri til að fjölga valkostum sínum og skoða alla þá kosti sem ýtt geta undir öryggi landsins í sinni víðustu mynd, efnahagslega, hernaðarlega, félagslega. Þeir sem telja að þetta sé ekki réttur tími eru í raun að segja að við eigum að loka dyrum þegar heimurinn er að hreyfast. Verði þessum dyrum lokað er óvíst með öllu hvenær þær opnast aftur. Það er ekki valkostur að grafa sig í fönn. Ísland getur ekki tryggt hagsmuni sína með því að halda sig til hlés. Fullvalda Ísland á samleið með Norðurlandaþjóðum og öðrum Evrópuþjóðum. Við eigum ekki að vera feimin við að segja það hátt og skýrt. Þegar vindar blása er freistandi að lækka röddina og vona að stormurinn gangi yfir. En það er einmitt þá sem á reynir. Við stöndum ekki vörð um hagsmuni Íslands með því að grafa okkur í fönn. Við gerum það með því að standa keik í vindinum, með skýra sýn og hugrekki til að taka ákvarðanir. Það er íslenska leiðin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Vill ekki búa aftur með maka Samspil timburs og flísa skapa skemmtilega stemningu Matarupplifun á heimsmælikvarða á Lava í Bláa Lóninu Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Blikur á lofti hjá hótelum Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Klám er undirstöðuvandamálið Mest lesið Í gær Í vikunni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Húsnæði Kjötborgar til sölu Blikur á lofti hjá hótelum „Allt hefur verið afbókað“ „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Dönsuðu Lísu í Borgarleikhúsinu Samstarf Íslands við NASA felur þetta í sér Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Vill ekki búa aftur með maka Samspil timburs og flísa skapa skemmtilega stemningu Matarupplifun á heimsmælikvarða á Lava í Bláa Lóninu Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Klám er undirstöðuvandamálið Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Mest lesið Í gær Í vikunni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Húsnæði Kjötborgar til sölu Blikur á lofti hjá hótelum „Allt hefur verið afbókað“ „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Dönsuðu Lísu í Borgarleikhúsinu Samstarf Íslands við NASA felur þetta í sér Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article