Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir engin fordæmi fyrir þeirri leið sem Ísland hyggist fara í átt að Evrópusambandinu. Hún segir samningsstöðu Íslands almennt góða, en þó þurfi að vanda til verka ef til samningaviðræðna komi. Að sögn Vilborgar er venjan sú að ríki sæki fyrst um aðild og kjósi um samninginn í framhaldi af því. Hún segir að grundvöllur viðræðnanna sé sá sami og í síðustu viðræðum, en þó hafi margar breytingar átt sér stað í alþjóðamálum undanfarin tíu ár. Viðbrögð við breyttri heimsmynd „Heimurinn er að breytast,“ segir Vilborg og bætir við að meginbreytingarnar sem hafi átt sér stað sé útganga Bretlands úr ESB. „En annað er einfaldlega viðbrögð við breyttri heimsmynd, breyttum aðstæðum, efnahagslega, hernaðarlega og nú auðvitað síðast breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna.“ Vilborg segir ESB hafa tekist að rétta úr kútnum eftir útgöngu Bretlands. Hún telur þróun sambandsins frekar hafa farið í hina áttina. „Það var ótti við að fleiri ríki færu sömu leið en það sem gerðist kannski frekar var að ESB-ríkin sem eftir urðu þéttu sínar raðir. Og nú er engin umræða um að einhver ætli að segja sig úr, eða fylgja Bretlandi úr Evrópusambandinu. Frekar er umræða í Bretlandi um að það hafi verið mistök að gera það.“ „Þyrfti að vera einhver málamiðlun“ Vilborg segir að gjarnan sé tekist á um hversu mikið sé hægt að finna málamiðlanir í viðræðum við Evrópusambandið. Hún segir báðar hliðar hafa nokkuð til síns máls. „Mörg ríki hafa fengið sérlausnir og undanþágur um málefni sem skipta ríki máli. Það eru fundnar lausnir á því. En í grunninn er auðvitað búist við því að allt það sem skiptir máli, og grundvallaratriði að það séu öll aðildarríki sem fylgi sömu reglum þar.“ Að mati Vilborgar hefur samningsstaða Íslands lengi verið góð þegar kemur að því að uppfylla grundvallarskilyrði þess að ganga í Evrópusambandið. Hún segir stærstu spurningarnar lúta að þeim atriðum sem semja þurfi um og hvort hægt sé að komast að ásættanlegri niðurstöðu fyrir Íslendinga hvað það varði. „Það þyrfti að vera einhver málamiðlun, en þetta vitum við ekki fyrr en á reynir og það er í rauninni á þessum tímapunkti mjög erfitt að segja hvort hægt sé að semja um samning sem er ásættanlegur fyrir Íslendinga. Við vitum það ekki og þótt samningsstaða okkar sé kannski sterkari en fyrir tíu árum síðan þarf samt að vanda mjög vel til og berjast fyrir okkar hagsmunum.“ Viðtal Kastljóss við Vilborgu Ásu má finna í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir hugsanlega leið Íslands í átt að Evrópusambandinu frábrugðna því sem venjan er í aðildarferli ríkja. Hún segir samningsstöðu Íslands góða. Málamiðlanir verði þó líklega óumflýjanlegar.