Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þessi félög um aðild að ESB eru starfandi á Íslandi

Read Full Article →

Í áranna rás hafa sprottið upp á Íslandi fjölmargar hreyfingar, hópar og verkefni tengd mögulegri aðild landsins að Evrópusambandinu. Allur gangur er á því hvort slík samtök séu hlynnt eða andsnúin inngöngu Íslands í ESB. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru það helst tvenn félagasamtök hlynnt aðild að ESB sem eru virk á Íslandi og tvenn sem eru andsnúin. Háskóli Íslands heldur úti upplýsingaveitu og nýlega var stofnuð sjálfstæð hugveita til að greina mögulega inngöngu. Evrópuhreyfingin og Ungir Evrópusinnar jákvæð Tvenn samtök hafa nýlega látið til sín taka í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB. Á vef Evrópuhreyfingarinnar segir að hún sé félag fólks „sem vill að almenningur ráði för um aðild Íslands að ESB,“ Félagið kynnir iðulega kosti þess að Ísland gangi í ESB og vill að gerð aðildarsamnings verði lokið. Þjóðin eigi svo að fá að taka afstöðu til hans að vel ígrunduðu máli. Evrópuhreyfingin var stofnuð 9. maí 2022. Formaður hennar er Magnús Árni Skjöld Magnússon og framkvæmdastjóri er Snærós Sindradóttir. Ungir Evrópusinnar eru félagasamtök ungs fólks sem telur að hagsmunum Íslands geti verið betur borgið innan Evrópusambandsins. Hreyfingin er að eigin sögn þverpólitísk og markmið hennar er að virkja íslensk ungmenni í umræðum um Evrópu og ESB. Formaður Ungra Evrópusinna er Óðinn Freyr Baldursson. Heimssýn og Til vinstri við ESB neikvæð Önnur samtök beita sér þó í hina áttina. Heimssýn , hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, var stofnuð í júní 2022. Að því er segir á vef hreyfingarinnar er hún þverpólitísk samtök þeirra sem „telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.“ Formaður Heimssýnar er Haraldur Ólafsson prófessor. Þá voru samtökin Til vinstri við ESB stofnuð í janúar á þessu ári. Markmið þeirra er að beita sér af „alefli fyrir því að þjóðin hafni aðild að Evrópusambandinu.“ Samtökin setja sig að eigin sögn upp á móti nýlendustefnu og eru friðarsinnuð. Þau gjalda varhug við því sem þau telja vera vígvæðingu Evrópusambandsins. Formaður Samtakanna er Þorsteinn Bergsson. Aðrir stofnmeðlimir eru meðal annars Sólveig Anna Jónsdóttir, Júlíus Sólberg Auðunsson og Bjarni Harðarson. Þá er heimasíðan Stjórnmálin.is talsvert virk þessa dagana en þar birtast reglulega pistlar þar sem fjallað er um aðild Íslands að Evrópusambandinu á mjög gagnrýninn hátt. Vefsíðan hóf göngu sína 2024 og forsvarsmaður hennar er er Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur. Upplýsingavefur og hugveita Evrópuvefurinn er upplýsingaveita um ESB og Evrópumál sem haldið er úti af Vísindavef Háskóla Íslands. Tilgangur hans er að veita hlutlægar upplýsingar um stofnanir og stefnumál ESB, aðildarríki sambandsins og aðildarumsókn Íslands. Hann var stofnaður 2011 en hefur verið uppfærður nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Evrópustraumar er að eigin sögn sjálfstæð hugveita sem hefur það markmið að greina málefni sem varða hagsmuni Íslands við mögulega inngöngu. Þá kveðst hugveitan vilja kanna áhrif þess að Ísland gerist aðildarríki fyrir almenning, atvinnugreinar og stjórnsýslu. Hún var stofnuð í nóvember 2025 af Hallgrími Oddssyni hagfræðingi sem er jafnframt framkvæmdastjóri hennar. Evrópuhreyfingin og Heimssýn fengu í desember 10 milljónir hvor um sig frá stjórnvöldum til að efla lýðræðislega umræðu um kosti og galla aðildar að ESB. Þá fékk Vísindavefur HÍ fimm milljónir til að efla Evrópuvefinn. Á Íslandi hefur verið frá árinu 2010 verið starfrækt Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sem hefur stöðu sendiráðs og er fulltrúi ESB hérlendis. Hlutverk hennar er meðal annars að starfa sem fulltrúi ESB gagnvart íslenskum stjórnvöldum og veita upplýsingum um ESB til almennra borgara, félagasamtaka og fjölmiðla meðal annarra. Á annan tug óvirk eða í dvala Fjölmargar hreyfingar, félög og vefir hafa sprottið upp áður þegar aðild Íslands að ESB hefur verið í hámælum. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru eftirfarandi félög, hreyfingar og síður óvirkar í augnablikinu. Athugið að upptalningin er ekki tæmandi og ekki er útilokað að sum félaganna vakni úr dvala eftir því sem líður að atkvæðagreiðslu. Evrópusinnuð: Evrópusamtökin, Já Ísland, Sterkara Ísland - þjóð meðal þjóða, Sjálfstæðir Evrópumenn, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, vefsíðan Þjóð.is. Gagnrýnin á aðild að ESB: Vefsíðan Evrópuvaktin, Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB, vefurinn Nei við ESB, Herjan - félag stúdenta við HÍ gegn aðild að ESB, Samtök Fullveldissinna, Samtök ESB andstæðinga, Vinstri gegn ESB, Þjóðráð. Þá lét Evrópufræðasetur við Háskólann á Bifröst til sín taka í umræðum um ESB á sínum tíma en lítið hefur borið á því í umræðunni síðastliðin ár.

Share this article