Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stefnt að þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að ESB í ágúst

Read Full Article →

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður Íslands að Evrópusambandinu verður haldin 29. ágúst næstkomandi ef þingsályktunartillaga þess efnis verður samþykkt á þingi. Frá þessu greindi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna í dag. Fundurinn var haldinn strax að ríkisstjórnarfundi loknum. Þorgerður Katrín sagði algjöran einhug innan ríkisstjórnarinnar að leggja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu fram. Þorgerður sagði að ekki verði kosið um aðild að ESB, heldur framhald viðræðna. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Þorgerður segir að þjóðin hafi um tvo valkosti að velja, já eða nei. Það lá fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið yrði haldin á kjörtímabilinu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að hún fari fram eigi síðar en 2027. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að tímasetningin sé valin vegna þess að samningsstaða Íslands sé góð. Þorgerður segir það hafa komið skýrt fram að atkvæðagreiðslunni yrði flýtt ef það væri í þágu íslenskra hagsmuna. Hún segir að hún eigi aldrei eftir að samþykkja samning sem fæli í sér afsal á forræði Íslands yfir auðlindum á borð við fiskveiðiauðlindina. Fréttin er í vinnslu.

Share this article