Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður Íslands að Evrópusambandinu verður haldin 29. ágúst næstkomandi. Frá þessu greindi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna í dag. Fundurinn var haldinn strax að ríkisstjórnarfundi loknum. Þorgerður Katrín sagði algjöran einhug innan ríkisstjórnarinnar að leggja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu fram. Þorgerður sagði að ekki verði kosið um aðild að ESB, heldur framhald viðræðna. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Þorgerður segir að þjóðin hafi um tvo valkosti að velja, já eða nei.