Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB-kosningin fer fram 29. ágúst

Read Full Article →

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram 29. ágúst næstkomandi. Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist ætla að mæla fyrir þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi í upphafi næstu viku. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er kveðið á um að halda eigi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB eigi síðar en árið 2027. „Einhver kann að spyrja af hverju núna,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum í dag. „Staðreyndin er sú er að samningsstaða okkar er góð núna, að okkar mati. Það verður mikið um það rætt hvernig verður samið, hvað er hægt að semja um, er eitthvað hægt að semja. Staðreyndin er sú að það er enginn einn samningur eða samkomulag sem Evrópusambandið hefur gert eins. Það liggur alveg fyrir. Það er mikið rót í alþjóðamálum núna. Íslendingar hafa í gegnum tíðina nýtt tækifæri sem hafa komist upp þegar það hafa komið hreyfingar á alþjóðamálin, þegar samningsstaða annarra ríkja, sambandahreyfinga, stjórnmálahreyfinga hafa breyst. Við teljum að akkúrat núna standi Ísland það sterkt efnahagslega en líka bara sjálfsmynd þjóðar til þess að geta tekið þessa ákvörðun.“ Kristrún lagði áherslu á að verið sé að kjósa um hvort viðræðum verði fram haldið. Kjósi þjóðin að halda áfram viðræðum verði svo önnur atkvæðagreiðsla um þann samning sem verður samið um. Þorgerður Katrín sagði að ríkisstjórnin hafi verið skýr um það að hún myndi meta þær aðstæður hverju sinni ef það væri í þágu íslenskra hagsmuna að flýta viðræðum. „Það var algjör einhugur um þetta í morgun í ríkisstjórn, að leggja þingsályktunartillöguna fram.“

Share this article