- What: Leaders of Nordic countries and Canada meet
- Impact: Discussion on security and defense issues
Innlent | mbl | 15.3.2026 | 16:58 Kristrún fundaði með leiðtogum Norðurlanda og Kanada Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada í Osló í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Vilja aukið samstarf í varnarmálum Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sótti í dag fund forsætisráðherra Norðurlandanna fimm og Kanada sem fram fór í Ósló í boði Jonasar Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. Að því er fram kemur í tilkynningu voru öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum meðal helstu umræðuefna á fundi forsætisráðherranna með Mark Carney starfsbróður þeirra í Kanada. Þá ræddu þeir einnig Rússland og stríðið í Úkraínu, Atlantshafstengslin, málefni Atlantshafsbandalagsins (NATO) og stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs. Leiðtogar þessara ríkja hittust síðast í tengslum við leiðtogafund NATO í Haag í fyrra. Ríkin eru öll aðilar að Norðurskautsráðinu og eiga náið samráð og samstarf á víðtæku sviði öryggis- og varnarmála. Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna heita þau því að dýpka samstarfið enn frekar. „Ísland mun láta til sín taka í því samhengi“ Haft er eftir Kristrúnu í tilkynningunni að Kanada hafi látið að sér kveða á alþjóðavettvangi síðan Mark Carney tók við embætti í fyrra og Norðurlandaleiðtogarnir hafi átt góðan fund með honum í Ósló dag. Fundurinn hafi einkennst af samheldni og sameiginlegri sýn ríkjanna á framtíð öryggismála á Norðurslóðum og við Norður-Atlantshaf. „Það er ákaflega mikilvægt fyrir Ísland, og öfluga íslenska hagsmunagæslu, að við eigum gott samband við okkar nánustu bandamenn,“ er haft eftir henni. Ísland hafi fundið fyrir breytingunum sem orðið hafi í kringum landið undanfarin misseri. En Íslendingar séu ekki hræddir heldur kjósi frekar að einblína á tækifærin sem fylgja gjarnan afgerandi breytingum. Áherslur NATO hafi til að mynda færst norður á bóginn, nær Íslandi. „Alvöru umræða um öryggi og efnahagslega samþættingu á svæðinu er farin af stað. Ísland mun láta til sín taka í því samhengi,“ segir Kristrún. Frétt af mbl.is Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda „Þar gæti Ísland leikið lykilhlutverk“ Kristrún leiddi umræður um samskipti og samstarf þvert yfir Atlantshafið á fundinum í dag. Þar benti hún á að ríkar ástæður væru til þess að þjóðirnar sem byggju á Norðurslóðum og nágrenni efldu enn frekar efnahagssamtarf sín á milli. Þar mætti nefna samstarf um uppbyggingu innviða á svæðinu, stórar fjárfestingar, efnahagslegt öryggi og viðnámsþol. „Ég tel að fyrir okkur hér á svæðinu gætu mikil tækifæri falist í auknu samstarfi. Þar gæti Ísland leikið lykilhlutverk. Nú er tíminn til að víkka sjóndeildarhringinn,“er haft eftir henni. Samstarf til að tryggja öryggi og fullveldi þjóðanna Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna kemur fram að ríkin hafi ákveðið að dýpka samstarf sitt til að tryggja öryggi og fullveldi þjóðanna. Í yfirlýsingunni eru sameiginlegar skuldbindingar ríkjanna til öryggis á Norðurslóðum áréttaðar og lögð áhersla á að samstarf sé lykilforsenda í því samhengi. Þá segir jafnframt að ríkin vinni saman til að stuðla að öryggi og stöðugleika á svæðinu fyrir öll bandalagsríki NATO. Þau séu skuldbundin því að auka viðveru bandalagsins á Norðurslóðum og tryggja fælingarmátt. Fagna leiðtogarnir sérstaklega aukinni áherslu NATO á Norðurslóðir með Arctic Sentry-aðgerðinni og öðrum viðbúnaði sem hleypt hefur verið af stokkunum á síðustu misserum. Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Vilja aukið samstarf í varnarmálum Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Janftefli hjá Sigga Ragga og Alex Loka Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi Kristrún fundaði með leiðtogum Norðurlanda og Kanada Liverpool - Tottenham, staðan er 1:0 Sigur hjá Ými Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvessir á landinu í nótt Kvartað undan rukkunum Isavia Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Hélt ég væri game over“ Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Unnið við lúxushótel á ný Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Einn fær rúmar 800 þúsund Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Janftefli hjá Sigga Ragga og Alex Loka Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi Kristrún fundaði með leiðtogum Norðurlanda og Kanada Liverpool - Tottenham, staðan er 1:0 Sigur hjá Ými Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Hélt ég væri game over“ Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Unnið við lúxushótel á ný Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Einn fær rúmar 800 þúsund Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu