Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Átta ára fangelsi fyrir alvarleg brot gegn eiginkonu sinni og ungu barni

Read Full Article →

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri til átta ára fangelsisvistar fyrir alvarleg og ítrekuð brot gegn eiginkonu sinni og sex ára stúlku sem var gestkomandi á heimili hans. Auk fangelsisvistar er manninum gert að greiða bæði barninu og eiginkonu sinni fjórar og hálfa milljón í miskabætur. Aðdraganda dómsmálsins má rekja til þess þegar lögreglufulltrúar á vegum Alþjóðalögreglunnar Interpol fundu myndefni á netinu sem sýndi kynferðisbrot gegn barni. Uppruni myndefnisins var rakinn til Íslands og í kjölfarið hófst rannsókn íslenskra lögregluyfirvalda. Ákærður vegna fjölda brota Dómur Héraðsdóms féll 9. mars. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að nauðga stúlkunni tvisvar þegar hún var í heimsókn á heimili hans og fyrir að nauðga eiginkonu sinni sex til átta sinnum á fimm ára tímabili. Maðurinn var einnig ákærður að birta myndir af verknaðinum sem sýndu brot hans gegn bæði stúlkunni og konunni. Þar að auki var manninum gert að sök að hafa í vörslum sínum alls 174 ljósmyndir og 70 kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Játaði en krafðist vægrar refsingar Maðurinn gekkst við þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök í fyrri ákærunni sem var gagnvart barninu en gekst ekki við allri atvikalýsingu. Maðurinn játaði því einnig brot gegn eiginkonu sinni. Hann gekkst við verknaðinum en gerði fyrirvara um fjölda ljósmynda. Í dóminum segir að ákærði hafi krafist þess að honum yrði dæmd vægasta refsing sem lög leyfðu og að dómurinn dæmi brotaþolum hæfilegar bætur samkvæmt mati málsins.

Share this article