- What: A man in Iceland has been sentenced to two and a half years in prison for sexual abuse and other offenses against a child.
- Impact: The man was found guilty of abusing his position of trust as the child's uncle.
Innlent | mbl | 18.2.2026 | 15:48 Braut ítrekað gegn ungu barni Framburður mannsins þótti ótrúverðugur. Hann var sakfelldur í héraðsdómi sem segir hann eiga sér engar málsbætur. Ljósmynd/Colourbox Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun, kynferðisbrot gegn barni og brot í nánu sambandi. Hann var enn fremur dæmdur til að greiða 1,5 milljónir kr. í miskabætur. Héraðssaksóknari gaf út ákæru á manninum í júní í fyrra og er hún í fimm liðum. Í þeim fyrsta er hann ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot gegn barni og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa í ótilgreindan fjölda skipta frá árinu 2020 fram til 22. júní 2023 misnotað freklega yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni, traust hennar og trúnað sem föðurbróðir hennar. Brotin voru framin á heimili þar sem hún bjó með honum aðra hverja helgi þegar hún naut umgengni við föður sinn. Hann er einnig sakaður um að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð stúlkunnar með því að snerta kynfæri hennar með fingrum sínum og hafa við hana önnur kynferðismök en samræði með því að setja fingur inn í leggöng hennar en stúlkan var þá tveggja til fimm ára gömul. Myndefni fannst í tölvum Þá var hann ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa um nokkurt skeið og fram til 7. júlí 2023 haft í vörslum sínum 330 ljósmyndir og 52 kvikmyndir í fartölvu sem sýna börn nakin og á kynferðislegan hátt. Lögregla lagði hald á fartölvuna í júlí 2023 við húsleit á heimili mannsins. Hann var með fleira myndefni á minnislykli og öðrum fartölvum. Maðurinn krafðist þess að hann yrði sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins en til vara að honum yrði dæmd vægasta refsing er lög leyfðu. Stúlkan greindi stjúpföður sínum frá brotunum Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll 5. febrúar en var birtur í dag, að rannsókn málsins hafi hafist í kjölfar þess að lögreglu barst 27. júní 2023 beiðni Barnaverndarþjónustu Kópavogs um lögreglurannsókn. Þar kom fram að barnavernd hefði 22. júní 2023 borist tilkynning frá móður stúlkunnar um að barnið hefði greint stjúpföður sínum frá því að maðurinn hefði snert á henni kynfærin. Kom fram hjá móður barnsins að stúlkan hefði beðið manninn um að hætta en hann hefði ekki gert það. Hann væri nú hættur og hefði stúlkan spurt hann af hverju hann væri hættur en ekki hefði komið fram hverju hann hefði svarað. Í beiðninni var rakið að foreldrar stúlkunnar væru skilin og færu sameiginlega með forsjá hennar og væri ákærði föðurbróðir brotaþola. Stúlkan hefði ásamt systur sinni farið í umgengni til föður aðra hverja helgi og væru þá inni á heimili föðurömmu í Hafnarfirði þar sem ákærði hefði einnig búið. Í samtali við foreldra stúlkunnar kom fram að maðurinn hefði stundum passað systurnar stutta stund og því verið einn með þeim. Framburður mannsins ótrúverðugur Fram kemur í dómi héraðsdóms að maðurinn hafi verið handtekinn á vinnustað sínum 6. júlí 2023. Var skýrslan tekin af honum og hann heimilaði leit á heimili sínu. Héraðsdómur segir í niðurstöðukafla dómsins að það sé mat dómsins að framburður mannsins væri ótrúverðugur og væri niðurstaða málsins ekki byggð á honum að því leyti sem hann væri í andstöðu við annað sem væri komið fram. Aftur á móti var framburður stúlkunnar metinn trúverðugur. „Er þá sérstaklega horft til þess að dómnum þykir útilokað að fimm ára barn geti lýst atvikum með þeim hætti sem brotaþoli gerði án þess að hafa upplifað þau sjálf. Fær framburður brotaþola ákveðna stoð í framburði stjúpföður brotaþola um breytta líðan hennar í kjölfar þess að hún sagði frá atvikum en hann sagði hana hafa borðað meira og verið opnari við hann. Einnig fær hann stoð í framburði móður brotaþola sem sagði brotaþola þá hafa verið með meiri matarlyst, væri minna kvíðin, hefði hætt að pissa undir og hætt að fá þvagfærasýkingar,“ segir í dómi héraðsdóms. Taldi það hlutverk fjölskyldunnar að kenna börnum kynferðislega hluti Þá var það mat héraðsdóms að framburður systur mannsins og föðursystur stúlkunnar hefði verið ýkjulaus og sérstaklega trúverðugur og borið þess merki að hún bæri umhyggju fyrir manninum. „Fær framburður brotaþola sérstaklega stoð í framburði vitnisins um samtal hennar við ákærða um meint brot hans gagnvart brotaþola. Tók vitnið skýrt fram að ákærði hefði ekki beint viðurkennt að hafa brotið gegn brotaþola en sagt að hann hafi talið það vera hlutverk fjölskyldumeðlima að kenna börnum kynferðislega hluti og að þetta væri hluti af uppeldi barns,“ segir í dómnum. Á sér engar málsbætur Héraðsdómur telur sannað að maðurinn hafi með háttsemi sinni ógnað heilsu og velferð barnsins og misnotað sér freklega yfirburðastöðu sína gagnvart henni. Héraðsdómur segir að lokum að brot mannsins samkvæmt fyrsta ákærulið hafi verið gróf og haft alvarlegar afleiðingar fyrir stúlkuna. Með því hafi hann brotið gróflega trúnað gagnvart ungu barni sem hann hafði í sinni umsjá og hafði algjöra yfirburðastöðu yfir. Auk þess hafi hann villt vísvitandi um fyrir lögreglu í upphafi rannsóknar. Hvað 2.-5. ákærulið varðar lítur dómurinn til þess að um var að ræða mjög gróft efni og töluvert magn efnis. Maðurinn á sér engar málsbætur. Framherjinn frá ÍBV í FH Braut ítrekað gegn ungu barni Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Hringvegurinn opnaður á ný Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Vínverslun Hagkaups vel tekið Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Krefst gagna vegna breyttra skráninga dánarorsaka Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Framherjinn frá ÍBV í FH Braut ítrekað gegn ungu barni Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Hringvegurinn opnaður á ný Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi