Innlent | mbl | 13.3.2026 | 19:56 Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn Setja bókamerki Davíð Oddson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Fjölmenni var við útförina en meðal viðstaddra voru núverandi og fyrrverandi ráðherrar, forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ýmsir embættismenn og sendiherrar erlendra ríkja, ásamt fjölskyldu og vinum. Séra Geir Waage jarðsöng, en hann er tengdafaðir Þorsteins, sonar Davíðs. Komst hann við þegar hann fór yfir æviágrip Davíðs í minningarorðum og rifjaði upp góðvild hans og gamansemi. Kristinn Sigmundsson söng einsöng við útförina, en organisti var Tómas Guðni Eggertsson og Sigurgeir Agnarsson lék á selló. Þá söng Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar. Vinir Davíðs og samstarfsmenn báru kistuna síðasta spölinn frá kirkjunni að líkbílnum. mbl.is/Karítas Lögreglumenn báru kistu Davíðs út kirkjuganginn á meðan undir hljómaði lagið Ísland er land þitt. Í anddyrinu tóku við tíu líkmenn, vinir Davíðs og samstarfsmenn, sem báru kistuna síðasta spölinn frá kirkjunni að líkbílnum. Það voru þeir Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eldjárn rithöfundur, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, Eiríkur Jónsson læknir, Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, athafnamaður og stjórnarmaður í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Í meðfylgjandi myndskeiði má hlýða á flutning Kristins Sigmundssonar og Tómasar Guðna á laginu Við Vatnsmýrina eftir Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson en yfir því má sjá nokkur augnablik frá útförinni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalmálið að vinna nágrannaslagina Þessi hlutu blaðamannaverðlaunin Afturelding í úrslitaleikinn Vandamálin stærri en hver þjálfar liðið Mæðginin öll í gæsluvarðhald Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Dæmdur í átta ára fangelsi Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Aðalmálið að vinna nágrannaslagina Þessi hlutu blaðamannaverðlaunin Afturelding í úrslitaleikinn Vandamálin stærri en hver þjálfar liðið Mæðginin öll í gæsluvarðhald Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði er lokuð Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Loka