Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndskeið: Alþingi minntist Davíðs Oddssonar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.3.2026 | 15:15 | Uppfært 15:51 Myndskeið: Alþingi minntist Davíðs Oddssonar Setja bókamerki Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hóf þingfund í dag á því að minnast Davíðs Oddssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins og forsætisráðherra, sem lést í gær. „Með Davíð Oddssyni er genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma hér á landi. Enginn hefur gegnt embætti forsætisráðherra lengur hérlendis en hann og það má vera til marks um að bæði samverkafólk hans á vettvangi stjórnmálanna, og ekki síður kjósendur, höfðu fulla trú á hinum einarða foringja sem hann sannarlega var. Davíð Oddsson var margslunginn maður. Hann var stjórnmálaforingi og rithöfundur, maður orða en ekki síður athafna. Hann var orðheppinn og hnyttinn, og fengu andstæðingar hans oft að kenna á þeim eiginleika hans í pólitískum skylmingum, en einnig gjörhugull, stefnufastur og djarfhuga. Til marks um það er að hann stóð með réttindabaráttu samkynhneigðra allt frá upphafi hennar þegar fáir ráðamenn virtu það málefni viðlits eða þorðu að sinna því,“ sagði Þórunn meðal annars í sínum minningarorðum. Að lokum bað hún þingmenn að rísa úr sætum til að minnast Davíðs. Frétt af mbl.is Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Minningarorð Þórunnar í heild sinni: „Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lést í gær, sunnudaginn 1. mars, á heimili sínu hér í Reykjavík. Hann var á 79. aldursári. Davíð var fæddur í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir bankaritari og Oddur Ólafsson læknir. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík nam Davíð lögfræði við Háskóla Íslands og lauk lagaprófi árið 1976. Davíð Oddsson steig ungur inn á svið stjórnmálanna er hann var kjörinn borgarfulltrúi í Reykjavík árið 1974. Hann var þá þegar nafnkunnur maður fyrir leiklist og skemmtiþætti í útvarpi og hafði enda lagt stund á leiklistarnám um skeið. Ungum hæfileikamanni stóðu efalaust ýmsar dyr opnar en svo fór að stjórnmálin urðu meginvettvangur Davíðs Oddssonar um áratugaskeið og þar fyllir hann flokk eftirminnilegra forystumanna. Davíð varð borgarstjóri eftir sveitarstjórnarkosningarnar 1982 og gegndi því embætti fram til ársins 1991 að þegar hann færði sig inn á vettvang landsmálanna. Hann hafði verið varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1989 en í mars 1991 var hann kjörinn formaður flokksins og í apríllok sama ár varð hann forsætisráðherra í fyrsta ráðuneyti sínu. Davíð gegndi embætti forsætisráðherra samfleytt um 13 ára skeið, frá 1991–2004, og leiddi fjórar ríkisstjórnir á því tímabili. Eftir að Davíð lét af embætti forsætisráðherra var hann utanríkisráðherra í eitt ár þar til hann varð seðlabankastjóri haustið 2005 og formaður bankastjórnar en þeirri stöðu gegndi hann til 2009. Davíð var ritstjóri Morgunblaðsins frá hausti 2009 til dauðadags. Davíð Oddsson var fyrst kjörinn á þing í þingkosningunum 20. apríl 1991. Hann var þá efsti maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi og það sæti skipaði hann í öllum kosningum fram til 2003 en þá var hann síðast í framboði. Hann sat á 18 löggjafarþingum, ávallt sem ráðherra. Með Davíð Oddssyni er genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma hér á landi. Enginn hefur gegnt embætti forsætisráðherra lengur hérlendis en hann og það má vera til marks um að bæði samverkafólk hans á vettvangi stjórnmálanna, og ekki síður kjósendur, höfðu fulla trú á hinum einarða foringja sem hann sannarlega var. Davíð Oddsson var margslunginn maður. Hann var stjórnmálaforingi og rithöfundur, maður orða en ekki síður athafna. Hann var orðheppinn og hnyttinn, og fengu andstæðingar hans oft að kenna á þeim eiginleika hans í pólitískum skylmingum, en einnig gjörhugull, stefnufastur og djarfhuga. Til marks um það er að hann stóð með réttindabaráttu samkynhneigðra allt frá upphafi hennar þegar fáir ráðamenn virtu það málefni viðlits eða þorðu að sinna því. Í dag minnast margir samferðarmenn Davíðs, m.a. formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, en hún skrifar m.a.: „Fyrir okkur Sjálfstæðismenn var hann meira en stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð. Hann hafði sterka trú á Íslandi, á frelsi einstaklingsins, á dugnað fólksins í landinu og á getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum. Sú trú einkenndi verk hans og málflutning alla tíð.“ Of langt mál yrði að telja öll þau stefnumarkandi mál sem komu til framkvæmda í langri forsætisráðherratíð Davíðs Oddssonar en þá voru gerðar margvíslegar breytingar á stjórn efnahagsmála og í ríkisfjármálum, stjórn fiskveiða komst í fastar skorður og tengsl Íslands við umheiminn jukust og styrktust með gildistöku EES-samningsins árið 1994. Einnig lagði Davíð fram frumvörp til stjórnsýslulaga og upplýsingalaga sem hvort um sig urðu að grundvallarlögum í opinberri stjórnsýslu og færðu landsmönnum mikilvægar réttarbætur. Ég bið þingheim að minnast Davíðs Oddssonar, fyrrverandi alþingismanns og forsætisráðherra, með því að rísa úr sætum.“ Frétt af mbl.is Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Veruleg launalækkun með falli Melania stýrir fundi Öryggisráðs SÞ Litáen – Ísland kl. 16:30, bein lýsing Gunnar Karl Djúpavatnsmeistari Myndskeið: Alþingi minntist Davíðs Oddssonar Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Ófært víða á Austurlandi og skólahaldi aflýst Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Nýjast á mbl.is » Veruleg launalækkun með falli Melania stýrir fundi Öryggisráðs SÞ Litáen – Ísland kl. 16:30, bein lýsing Gunnar Karl Djúpavatnsmeistari Myndskeið: Alþingi minntist Davíðs Oddssonar Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipti um kyn í miðju matarboði Vilja byggja ofan á Valhöll og breyta í hótel Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Beint: Átökin í Mið-Austurlöndum breiðast út Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af

Share this article