Innlent | mbl | 2.3.2026 | 4:40 Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Davíð Oddsson. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri. Með honum er genginn einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum landsins um áratugaskeið. Undir stjórn hans sem borgarstjóri Reykjavíkur tók borgin miklum framförum, uppbyggingin var gríðarleg og fjárhagurinn traustur. Þegar Davíð lét af störfum sem borgarstjóri tók hann við sem forsætisráðherra og leiddi þar einnig miklar umbætur eftir langt erfiðleikaskeið. Við tók mikill vöxtur og aukin velsæld þjóðarinnar. Þegar hann lét af störfum í ríkisstjórn tók hann við forystu í Seðlabankanum og tókst þar á við mikla erfiðleika í bankahruninu en lagði um leið grunninn að því að þjóðinni tókst að sigla örugglega upp úr þeim öldudal. Haustið 2009 tók Davíð við sem ritstjóri Morgunblaðsins og gegndi því starfi allar götur síðan. Undir forystu hans leiddu blaðið og aðrir miðlar Árvakurs hf. mikilvæga umræðu og umfjöllun um mál sem varða landsmenn miklu. Um leið hafa þessir miðlar staðið af sér margvíslega ágjöf og standa sterkt í dag þegar þeir kveðja Davíð með þakklæti og sorg. Davíð Oddsson fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir bankaritari. Eftirlifandi eiginkona hans er Ástríður Thorarensen, en þau giftust 5. september 1970. Foreldrar hennar voru Þorsteinn S. Thorarensen og kona hans Una Thorarensen. Sonur Davíðs og Ástríðar er Þorsteinn og kona hans er Heiðrún Geirsdóttir. Eiga þau tvær dætur. Davíð lauk stúdentsprófi frá MR. Hann lagði um tíma stund á leiklistarnám en lauk prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands. Davíð var skrifstofustjóri Leikfélags Reykjavíkur árin 1970 til 1972, þingfréttaritari Morgunblaðsins árin 1973 til 1974, starfsmaður Almenna bókafélagsins 1975, skrifstofustjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1976 til 1978 og framkvæmdastjóri þess 1978 til 1982. Davíð var kjörinn í borgarstjórn árið 1974 og sat þar til ársins 1994, þar af sem borgarstjóri árin 1982 til 1991. Davíð var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi árið 1991 og gegndi því hlutverki þar til hann sagði skilið við stjórnmálin árið 2005. Hann var kjörinn alþingismaður Reykvíkinga í þingkosningunum 1991 og tók þá við sem forsætisráðherra. Hann gegndi því embætti til 2004, þegar hann tók við sem utanríkisráðherra í rúmt ár, en þá hætti hann í stjórnmálum og tók við sem seðlabankastjóri og formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Hann var seðlabankastjóri ásamt þeim Eiríki Guðnasyni og Ingimundi Friðrikssyni til ársins 2009. Hinn 24. september það ár tók hann við sem ritstjóri Morgunblaðsins ásamt Haraldi Johannessen. Davíð Oddsson var fjölhæfur maður og lagði meðal annars stund á margskonar ritstörf. Eftir hann liggja vinsælir dægurlagatextar og annar kveðskapur, hann samdi þrjú leikrit fyrir sjónvarp, Róbert Elíasson kemur heim frá útlöndum (1977), Kusk á hvítflibbann (1981) og Allt gott (1991), og tvö verk ásamt öðrum fyrir Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið, Ég vil auðga mitt land (1974) og Íslendingaspjöll (1975). Þá sinnti hann margvíslegri þáttagerð fyrir útvarp á árunum 1968 til 1975, svo sem Útvarpi Matthildi í samstarfi við Hrafn Gunnlaugsson og Þórarin Eldjárn, sem naut mikilla vinsælda. Hann skrifaði ritgerð um Geir Hallgrímsson forsætisráðherra í Andvara árið 1994 og sendi frá sér smásagnasöfnin Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar (1997) og Stolið frá höfundi stafrófsins (2002). Að leiðarlokum þakka starfsmenn Morgunblaðsins og mbl.is ánægjulegt og farsælt samstarf og senda fjölskyldu Davíðs sínar innilegustu samúðarkveðjur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Snýr aftur til heimalandsins eftir mánaða útlegð 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Forvitnilegur fornleifafundur í Noregi „Vantar fleiri stafabil til að tjá mig um hálfvitann Trump“ Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Meirihlutinn ekki að sinna því sem hann á að sinna Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Snýr aftur til heimalandsins eftir mánaða útlegð 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Forvitnilegur fornleifafundur í Noregi „Vantar fleiri stafabil til að tjá mig um hálfvitann Trump“ Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er grafalvarleg staða“ Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Beint: Ekkert lát á átökum í Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Meirihlutinn ekki að sinna því sem hann á að sinna Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga