- What: Death of former Icelandic Prime Minister Davíð Oddsson
- Impact: Former leader of Iceland passed away at age 78
Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrum forsætisráðherra lést á heimili sínu í gær. Davíð fæddist 17. janúar 1948 og var því 78 ára að aldri. Davíð var færsælasti og áhrifamesti stjórnmálamaður Íslands um áratugaskeið. Undir stjórn hans sem borgarstjóri Reykjavíkur var mikil uppbygging í borginni, álögur þær lægstu á landinu, fjárhagurinn traustur og skuldir nær engar. Vorið 1991 tók Davíð við formennsku í Sjálfstæðisflokknum og myndaði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokksins sem tók við völdum 30. apríl 1991, eða fyrir rétt tæpum 35 árum síðan. Tók þá við eitt mest blómaskeið í íslensku efnahagslífi, ríkisfyrirtæki og sjóðir voru seldir eða lagðir niður, skattar lækkaðir verulega. Skuldir ríkissjóðs voru nær engar þegar Davíð lét af störfum í ríkisstjórn haustið 2005. Davíð var seðlabankastjóri árin 2005 til 2009 þegar tekist var á við erfiðleikana sem fylgdu falli bankakerfisins. Í september 2009 tók Davíð við sem ritstjóri Morgunblaðsins og gegndi því starfi til dánardags. Foreldrar Davíðs voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir bankaritari. Eftirlifandi eiginkona hans er Ástríður Thorarensen. Foreldrar hennar voru Þorsteinn S. Thorarensen lögfræðingur og borgardómari og kona hans Una Thorarensen. Sonur Davíðs og Ástríðar er Þorsteinn og kona hans er Heiðrún Geirsdóttir. Eiga þau tvær dætur.