Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fleiri Íslendingar telja Bandaríkjamenn andstæðinga en bandamenn

  • What: A new poll in Iceland shows that more Icelanders view the United States as an adversary rather than an ally.
  • Impact: This is the first time this poll has been conducted in Iceland, showing a shift in public opinion.
Read Full Article →

Landsmenn eru líklegri til að lýsa Bandaríkjunum sem andstæðingi en bandamanni samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. 40 prósent segjast myndu lýsa Bandaríkjunum sem andstæðingi, 32 prósent sem bandamanni og 28 prósent taka ekki afstöðu eða vilja ekki svara. Þetta er í fyrsta skipti sem Maskína leggur þessa könnun fyrir og því ekki að finna samanburð um fyrri afstöðu fólks. Fyrirtækið vísar þó til könnunar sem Epinion gerði í Danmörku. Þar hafa samskiptin við Bandaríkin verið í brennidepli vegna ásælni Donalds Trumps forseta í Grænland. 60 prósent Dana lýstu Bandaríkjunum sem andstæðingi en aðeins sautján prósent sem bandamanni. Bandaríkin, Ísland og Danmörk voru öll meðal stofnfélaga Atlantshafsbandalagsins 1949 og því innvikluð í sameiginlegt varnarkerfi í 76 ár. Mikill munur er á afstöðu Íslendinga til Bandaríkjanna þegar litið er til kyns, aldurs, búsetu, stjórnmálaskoðana og tekna. Þannig lýsa 49 prósent kvenna Bandaríkjamönnum sem andstæðingi en aðeins 17 prósent telja þá sem bandamenn. Hjá körlum er þessu þveröfugt farið. 46 prósent þeirra líta á Bandaríkin sem bandamann en 32 prósent sem andstæðing. Því yngra sem fólk er því líklegra er það til að telja Bandaríkin vera andstæðing. Fólk á höfuðborgarsvæðinu er líklegra til að telja Bandaríkin andstæðing heldur en fólk á landsbyggðunum. Tekjulægra fólk er ögn líklegra en tekjuhærra til að álíta Bandaríkin andstæðing og fólk með hærri tekjur líklegra til að álíta þau bandamann. Mikill munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Enginn Pírati álítur Bandaríkin bandamann og sárafáir Sósíalistar. Yfirgnæfandi meirihluti beggja álítur þá andstæðing, sérstaklega Sósíalistar þar sem 93 prósent lýsa þeirri skoðun. 69 prósent Miðflokksmanna álíta Bandaríkin bandamann en ellefu prósent álíta þau andstæðing. 57 prósent Sjálfstæðismanna lýsa Bandaríkjunum sem andstæðingi. Maskína kannaði hug fólks í Þjóðgátt sinni dagana 6. til 12. febrúar. 1.219 svöruðu spurningunni.

Share this article