Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grindvíkingar fá að velja um hvar þeir kjósa

  • What: Legislation has been passed allowing residents of Grindavík displaced by volcanic activity to choose where they vote in upcoming local elections.
  • Impact: Grindavík residents who had legal residence in Grindavík before the evacuation on November 10, 2023, can choose to vote in Grindavík or in the municipality where they now reside.
Read Full Article →

Bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík hefur verið samþykkt á Alþingi. Ákvæðið gefur þeim Grindvíkingum sem áttu lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 val um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eiga nú lögheimili í. Mikilvægt skref í átt að endurreisn bæjarfélagsins Síðastliðið haust settu stjórnvöld af stað opið samráðsferli um næstu skref í endurreisn Grindavíkur. Grindavíkurnefnd hafði vikurnar þar á undan unnið að gerð umræðuskjals um sveitarstjórnarkosningar, stjórnskipulag og samráð í endurreisnarferli bæjarfélagsins. Umsagnarferlinu lauk í lok október og birti dómsmálaráðuneytið í desember áform um lagasetningu vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík í maí næstkomandi. Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndarinnar, sagði í samtali við fréttastofu í desember að áformin væru í samræmi við það sem nefndin hafi lagt til við stjórnvöld. Að fá ákvæðið inn í lög væri mikilvægt skref í átt að endurreisn Grindavíkur. „Og þá viljum við gjarnan að þeir sem bjuggu í Grindavík og ekki síst þá þeir sem hafa í hyggju að flytja aftur geti tekið þátt í að móta framtíðina í gegnum sveitarstjórnarkosningarnar,“ sagði Árni. Í greinargerð sem fylgir frumvarpinu kemur fram að markmið lagasetningarinnar sé að tryggja þau grundvallarréttindi fólks að geta notið kosningarréttar, sem sé liður í því að verja og endurreisa samfélagið í Grindavíkurbæ. Vegna náttúruhamfaranna sé nauðsynlegt að útfæra sérákvæði um kosningarrétt og kjörgengi þannig að Grindvíkingar geti komið að endurreisn samfélagsins þrátt fyrir að hafa þurft að flytja úr sveitarfélaginu. Í byrjun árs voru 1246 manns með skráð lögheimili í bænum, en voru 3.720 í lok september 2023.

Share this article