- What: Request to remove officials from committees
- Impact: Affects local governance and political structure
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar hafa lagt fram beiðni um endurskipun í ráð og nefndir verður tekin fyrir á borgarstjórnarfundi í dag. Lagt er til að Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur verði vikið úr ráðum og nefndum Þau yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn og gengu til liðs við Miðflokkinn fyrir tæpum tveimur vikum. Sanna Magdalena Mörtudóttir sagði í upphafi fundar á hádegi að beiðni um endurskipun í ráð og nefndir hefði borist. Kjartan og Marta eru hvort um sig í þremur ráðum. Þar sem Miðflokkurinn á engan borgarfulltrúa í Reykjavík tilkynntu Marta og Kjartan um stofnun borgarstjórnarflokks óháðra fyrir helgi. Búið er að samþykkja að taka beiðnina fyrir en það verður líklega ekki fyrr en í kringum kvöldmatarleytið í kvöld. Sjö fulltrúar eru í hverju af sex ráðum borgarinnar. Meirihlutinn á fjóra, Sjálfstæðisflokkurinn tvo og Framsóknarflokkurinn einn. Búast má við því að uppstokkun fylgi fækkun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.