Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnvöld tilbúin að ræða málamiðlanir

  • What: Iranian officials are open to negotiating a new nuclear agreement with the United States if sanctions are lifted.
  • Impact: The outcome of these negotiations could impact international relations and nuclear policy.
Read Full Article →

Stjórnvöld í Íran eru tilbúin til að ræða málamiðlanir til að ná samkomulagi um nýjan kjarorkusamning við Bandaríkin, ef Bandaríkin eru tilbúin til að aflétta refsiaðgerðum. Aðstoðarutanríkisráðherra Írans, Majid Takht-Ravanchi, sagði þetta í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC . Hann sagði að boltinn væri hjá Bandaríkjastjórn og hún þyrfti að sýna samningsvilja. „Ef Bandaríkjastjórn er einlæg þá er ég viss um að við þokumst að samkomulagi“, sagði ráðherrann. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað loftárásum á Íran ef samningar nást ekki um kjarnorkusamninga. Samninganefndir landanna áttu óbeinar viðræður í Óman fyrr í febrúar og Takht-Ravanchi staðfesti að næstu viðræður myndu fara fram í Genf á þriðjudaginn. Hann sagði viðræðurnar færast í rétt átt en enn væri of snemmt að segja til um það. Trum hefur einnig sagt að viðræðurnar hafa verið jákvæðar fram til þessar.

Share this article