Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Öllum nema þeim sem brýnustu skyldum gegna gert að yfirgefa sendiráð Bandaríkjanna í Ríad

The article describes an elevated physical threat to U.S. diplomatic facilities in the Gulf region, specifically from Iranian drone attacks targeting Saudi Arabia, Kuwait, and the UAE in retaliation for U.S. and Israeli actions. In response, the U.S. State Department has ordered a mandatory departure of non-emergency personnel and eligible family members from its embassy in Riyadh and is advising U.S. citizens to reconsider travel to Saudi Arabia. The threat is ongoing and dynamic, with no technical patch available; the primary mitigation is heightened situational awareness and adherence to official travel advisories.
Read Full Article →

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur í öryggisskyni skipað því starfsfólki sem ekki sinnir brýnustu starfsskyldum og fjölskyldum þess að yfirgefa sendiráð landsins í Sádi Arabíu. Íranir hafa ítrekað gert árásir á Sádi Arabíu í hefndarskyni fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels. Bandaríkjastjórn hafði áður heimilað brotthvarf starfsfólksins eftir drónaárás á sendiráðið í liðinni viku. Íranir hafa einnig gert drónaárásir á sendiráðin í Kúveit og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Utanríkisráðuneytið hvetur Bandaríkjamenn til að draga úr ferðalögum til Sádi Arabíu en kveðst ekki vilja banna allar ferðir þangað, enda mikilvægur áfangastaður bandarískra kaupsýslu- og stjórnmálamanna. Konungdæmin við Persaflóa eru miklir samherjar Bandaríkjanna og í Barein og Katar eru stórar bandarískar herstöðvar. Íranir hafa gert mannskæðar árásir á nágrannaríki sín frá upphafi stríðsins sem forsetinn Masoud Pezeshkian baðst afsökunar á síðasta laugardag. Skömmu síðar sagði hann Írani neyðast til viðbragða væri lagt til atlögu gegn þeim þaðan.

Share this article