Ævar Smári Marteinsson varaformaður björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga var einn þeirra björgunarsveitarmanna sem hjálpuðu ferðalöngum á Holtavörðuheiði í gærkvöldi. „Það var farið að fenna dálítið að þeim þegar við komum á staðinn. Það voru tveir vörubílar og það fennir ótrúlega fljótt að svona stórum bílum í svona hríð. Þannig að snjómagnið þarna í brekkunni var orðið þó nokkuð mikið sko. Hvernig fór um farþega í bílum? Það fór bara mjög vel um þá. Þeir voru allir í gangi nema einn og þeir voru búnir að koma sér yfir í annan bíl þannig að það var hiti á fólki á meðan við vorum að vinna í þessu og bara hafði það náðugt á meðan það beið og við kæmum þeim niður,“ segir Ævar Smári. Óskað var aðstoðar björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga og björgunarsveitarinnar Heiðars á Varmalandi, beggja vegna Holtavörðuheiðar, korter yfir sjö í gærkvöldi vegna um fimm fólksbílar auk flutningabíla væru fastir á heiðinni og um 25 manns væru í bílunum. Farið var á fjórum björgunarsveitarbílum upp á heiðina. Bílarnir voru fastir í Hæðasteinsbrekku. „Það er búið að loka heiðinni þegar að þetta gerist. Þetta eru bílar sem hafa farið fyrir lokun, lenda í veseni. Það var bara rosaleg hálka og blinda. Í þessari Hæðasteinsbrekku verður rosalega blint í norðanáttinni og menn bara sáu ekki neitt.“ Á þriðja tug var bjargað úr föstum bílum á Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Heiðin var opnuð á hádegi en lokað aftur um tíma vegna áreksturs. Björgunarsveitarmaður á Hvammstanga segir þetta fyrstu alvöru norðanhríð vetrarins. Farþegarnir voru ferjaðir niður í Staðarskála þar sem þeir gátu fengið sér heitt að drekka og eitthvað í gogginn. Það vildi svo vel til að skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði voru tómar því einn hópur hafði farið fyrr um daginn. Þangað var því hægt að flytja ferðalangana sem flestir voru íslenskir. Klukkan níu í morgun ók svo björgunarsveitin bílstjórunum upp að heiði að sækja bílana í samvinnu við Vegagerðina sem mokaði frá bílunum og hjálpaði við að draga bílana upp á veg. Heiðin var opnuð á hádegi og mikil umferð bíla sem höfðu beðið eftir að opnaði. Flughált var á heiðinni eftir hádegi í dag og óku margir bílanna heldur greitt. Erfitt var að bremsa í Hæðasteinsbrekku og starfsmenn fréttastofu óku fram á nokkurra bíla árekstur upp úr klukkan þrjú í dag. Myndaðist löng röð. Tekin var ákvörðun um að loka heiðinni á meðan bílunum var komið á brott og hlúð að farþegum. Meiðsl voru minni háttar og opnað fyrir umferð um Holtavörðuheiði á ný um klukkan fimm. Ævar Smári og aðrir í Húnum á Hvammstanga hafa ekki haft eins mikið að gera vegna ófærðar í vetur eins og áður: „Þetta er nú eiginlega fyrsta alvöru norðanhríðin sem við sjáum þennan veturinn. Þetta er í annað skipti sem við förum upp á heiði í vetur í eitthvað svona snjóavesen sko. Annars höfum við varla séð snjó hérna í vetur.“