Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, hefur beðið Donald Trump Bandaríkjaforseta að afnema refsiaðgerðir gegn landinu. Refsiaðgerðirnar voru settar á landið 2014. Þær hafa lamað efnahagskerfi landsins og verðbólga fór upp í 475% á síðasta ári. Efnahagsástandið hefur einnig bitnað á uppbyggingu í olíuiðnaðinum. Landið framleiðir aðeins nokkrar milljónir olíutunna á hverjum degi, þrátt fyrir að búa yfir einum mestu olíuauðlindum heims. Bandarísk yfirvöld hafa sóst eftir meiri aðgang að olíu- og steinefnaauð landsins eftir að fyrrum forseti landsins, Nicolas Maduro, var handtekinn í aðgerð bandaríska hersins þann 3. janúar. Í gær heimiluðu svo bandarísk stjórnvöld innflutning á áburði frá Venesúela, en verð á áburði hefur hækkað eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst. Rodríguez fundaði með kólumbískri sendinefnd í Caracas í gær. Ríkisstjórn Trumps hefur þrýst á stjórnvöld beggja ríkja til að taka á glæpagengjum og eiturlyfjahringum sem starfa beggja vegna landamæranna líkt og Þjóðfrelsisherinn ELN, sem er vinstrisinnaður skæruliðahópur. Rodriguez sagði að þetta væri vandamál sem bæði löndin væru að eiga við og þau væru staðráðin í að ná árangri í baráttunni saman.