Innlent | Morgunblaðið | 14.3.2026 | 7:00 Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Guðlaugur Þór gagnrýnir Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Þorgerður á fund utanríkismálanefndar Ráðherra fór með rangt mál Fundi slitið á Alþingi laust fyrir miðnætti Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp » Fleiri tengdar fréttir „Loksins þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer til fundar við bandaríska ráðamenn, þá hittir hún enga ráðherra en fær aðeins áheyrn hjá varamönnum þeirra. Það er stórt mál að íslenskur utanríkisráðherra skuli sætta sig við það að funda einungis með tilteknum varamönnum.“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að aldrei hefði hvarflað að sér að standa að málum með þessum hætti, en í utanríkisráðherratíð Guðlaugs Þórs fundaði hann með tveimur utanríkisráðherrum Bandaríkjanna sem komu hingað til lands, einnig varnarmálaráðherranum og utanríkisráðherranum og þá í Bandaríkjunum. Þá eru ótaldir fundir með ýmsum þingmönnum í öldungadeild og fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Breyting frá fyrri tíð „Svo virðist sem hún fái ekki áheyrn hjá æðstu mönnum bandarískra stjórnvalda og það hlýtur að kalla á skýringar og svör, enda mikil breyting frá því sem áður var. Hún er utanríkisráðherra Íslands og sem slík á hún að tala við utanríkisráðherra annarra þjóða,“ segir Guðlaugur Þór og nefnir að kollegar hennar á Norðurlöndum láti ekki bjóða sér svona meðferð. Þátttaka í hópmálsókn Fyrr í vikunni var kunngjörð sú ákvörðun utanríkisráðherra að taka þátt í hópmálsókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem þess er krafist að Ísrael verði dæmt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gasa, enda brjóti hún í bága við hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna. Leitað var viðbragða Guðlaugs Þórs við því og segir hann að Ísland geti ekki bjargað öllum í heiminum. „Ekkert þeirra ríkja sem við berum okkur saman við fer í svona vegferð. Þetta virðist hafa verið einhver skyndiákvörðun. Hún getur hins vegar haft afleiðingar í för með sér. Það hefur komið fram að ekkert mat var lagt á hvaða afleiðingar þetta getur haft fyrir Ísland,“ segir hann. Guðlaugur Þór nefnir að Ísland hafi verið fyrsta þjóðin sem tók upp mannréttindabrot Sádi-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Áður en það var gert hafi verið lagt mat á hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir Ísland ef Sádarnir myndu beita sér gegn Íslandi. Niðurstaðan hafi verið sú að þær yrðu hverfandi, ef til kæmi. Undarlegt viðskiptabann Guðlaugur Þór rifjar einnig upp þá sérkennilegu ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur að setja viðskiptabann á hernumdu svæðin í Palestínu, sem hafi haft afleiðingar í för með sér. Taka hefði átt íslenskar vörur úr bandarískum verslunum o.fl. Þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefði þurft að fara til Bandaríkjanna til að útskýra þetta stórundarlega mál. „Við skulum vona að það að fara með Afríkuþjóðum í þessa vegferð muni ekki valda okkur skaða, en það er ótrúlegt að mögulegar afleiðingar þessa hafi ekki verið skoðaðar. Við erum eina Norðurlandaþjóðin sem fer í þessa vegferð. Svo virðist sem utanríkisráðherra sé að reyna að kalla fram einhver neikvæð viðbrögð frá bandarískum stjórnvöldum, til að geta rökstutt meinta nauðsyn þess að ganga í Evrópusambandið. Það er mjög alvarlegt ef svo er. Ekkert ríki sem við berum okkur saman við gengur fram með þeim hætti. Aðalatriði málsins er það, að íslenski utanríkisráðherrann á að gæta hagsmuna Íslands,“ segir Guðlaugur Þór. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Þorgerður á fund utanríkismálanefndar Ráðherra fór með rangt mál Fundi slitið á Alþingi laust fyrir miðnætti Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hvessir á landinu í nótt Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk mörg góð ráð frá bróður sínum Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Yfir eitt þúsund árásir á dag Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað veldur langvinnu Covid? Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Sigið í öskjunni í áratugi Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Hvessir á landinu í nótt Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk mörg góð ráð frá bróður sínum Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Dæmdur í átta ára fangelsi Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað veldur langvinnu Covid? Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Sigið í öskjunni í áratugi Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar