Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aðalsteinn hættir að aðstoða Þorgerði Katrínu

Read Full Article →

Aðalsteinn Leifsson hefur ákveðið að hætta sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og hefur skráð sig í guðfræðinám við Háskóla Íslands. Hann vonast til að ljúka embættisprófi í fyllingu tímans. Aðalsteinn, sem áður var ríkissáttasemjari, hefur verið aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar síðasta árið og er varaþingmaður Viðreisnar. Hann bauð sig einnig fram í leiðtogaprófkjöri Viðreisnar en náði ekki kjöri. Ég geri mér grein fyrir að þetta vekur spurningar um mögulega þátttöku mína á lista Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík, þar sem ég var í öðru sæti í prófkjöri. Ég gef að sjálfsögðu kost á mér en kosningin var ekki bindandi nema í fyrsta sæti og uppstillingarnefndin, sem hefur málið í höndum sér, mun skila niðurstöðu fljótlega. Lífið er núna.“ Fréttastofa hafði spurnir af því að Aðalsteinn væri að hætta en þegar rætt var við hann fyrr í vikunni vildi hann ekki tjá sig um það.

Share this article