Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.3.2026 | 10:20 Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Óvíst um afdrif umsóknar ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir engar aðildarviðræður hafnar við Evrópusambandið. Sömuleiðis séu ummæli hennar um fiskveiðiskommissarinn innan sambandsins tekin úr samhengi. Þá skýtur utanríkisráðherrann föstum skotum á stjórnarandstöðuflokka Alþingis. Þetta kom fram á opnum fundi utanríkismálanefndar sem hófst klukkan níu í morgun. Frétt af mbl.is Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd Þar er fjallað um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu og er Þorgerður gestur á fundinum og svarar það spurningum nefndarinnar. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði á fundinum hvort komið hefði fram í samtölum íslenskra stjórnvalda við sambandið að það myndi taka upp íslenska fiskveiðikerfið. Einnig spurði Diljá um ummæli Þorgerðar um fiskveiðikommisarinn, en í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að Þorgerður teldi að með aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi „fiskveiðikommisarinn“, sá meðlimur framkvæmdastjórnar ESB sem fer með sjávarútvegsmál, koma í hlut Íslendinga. Á það að hafa komið fram í máli hennar á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða, sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu síðdegis á mánudag í liðinni viku. Aukinheldur vildi Diljá fá að vita hvort og hvaða áhrif það hefði ef þjóðaratkvæðagreiðslan myndi frestast um nokkrar vikur, eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram tillögu um að verði gert. Frétt af mbl.is „Kommissarinn“ íslenskur Mikilvægt að fara sem fyrst í aðildarviðræður Í svari sínu sagðist Þorgerður telja það mikilvægt út frá íslenskum hagsmunum að fara sem fyrst í aðildarviðræður. Þess vegna væri m.a. verið að flýta atkvæðagreiðslunni. Þá væru allt öðruvísi viðhorf í dag gagnvart viðræðum við Evrópusambandið en voru á árum áður. Ummælin tekin úr samhengi og engar viðræður hafnar Þorgerður sagði ummæli sín varðandi fiskveiðikommissera tekin úr samhengi. Hún hefði á fundinum með millilandaráðunum verið að greina frá vangaveltum Norðmanna sem teiknuðu upp þær aðstæður að Ísland yrði á undan inn í Evrópusambandið og að þeir þyrftu þá að semja við íslenska fiskveiðikommissera og benti hún á að vangavelturnar hefðu verið í gríni. Benti hún þó aukinheldur á að það segði mikið um hve mikið stórveldi Ísland væri er kæmi að fiskveiði. Þorgerður undirstrikaði að lokum að engar aðildarviðræður væru hafnar við sambandið, þ.á.m. varðandi forræði yfir auðlindum landsins. Fréttir þess efnis væru „rangt, rugl og della“. Frétt af mbl.is Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar „Kúnstugt“ hjá stjórnarandstöðunni „Mér finnst þetta svolítið kúnstugt, komandi frá flokkum sem héldu uppi lengsta málþófi Íslandssögunnar og vildu koma í veg fyrir að þjóðin fengi eðlileg afnot og gjöld fyrir sína auðlind, [þeir] vildu ekki tryggja þjóðinni sinn eðlilega hlut,“ sagði Þorgerður. „Þetta eru líka sömu flokkarnir sem hafa komið í veg fyrir að við setjum auðlindaákvæði í stjórnarskrána. Mér finnst ekki fara saman hljóð og mynd hjá stjórnarandstöðuflokkunum sem eru að tala núna um forræði yfir auðlindum. Flokkar sem hafa ekki treyst sér til þess að tryggja auðlindaákvæði í stjórnarskrá,“ sagði ráðherrann að lokum í svari sínu. Tengdar fréttir Ísland og ESB Óvíst um afdrif umsóknar ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Draumur frá því að ég man eftir mér Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Stuðningsmaður United illa svikinn Volcanologist eyes possible submarine eruption off Reykjanes Tímamótateiti Blue Lagoon Skin Science á Listasafni Íslands Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Hryðjuverkamálið á dagskrá um miðjan maí Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Varari um sig og óttast um öryggi sitt Telja bandaríska ríkið skulda sér Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Draumur frá því að ég man eftir mér Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Stuðningsmaður United illa svikinn Volcanologist eyes possible submarine eruption off Reykjanes Tímamótateiti Blue Lagoon Skin Science á Listasafni Íslands Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Keypti Heimskringlu fyrir metfé og efnir til keppni Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Hamas-liðar á Höfðatorgi Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Varari um sig og óttast um öryggi sitt Telja bandaríska ríkið skulda sér Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar

Share this article