Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óskýr svör ráðherra um aðlögun

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.3.2026 | 13:00 Óskýr svör ráðherra um aðlögun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Ráðherra fór með rangt mál » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er mjög einföld spurning,“ hefur ítrekað verið haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um spurningu þá sem hún hyggst bera undir þjóðina í ágúst næstkomandi og hljóðar svo: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Þessum orðum hafa þær skýringar gjarnan fylgt, hvort tveggja frá Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, að málið snúist um það hvort þjóðin vilji sjá samninginn sem Íslandi gæti boðist um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Þeir sem vilji vita meira svari spurningunni játandi en þeir sem ekki vilja vita meira um hvað Íslandi gæti boðist geti þá svarað spurningunni neitandi. Fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla snúist sum sé ekki um annað en það hvort þjóðin vilji sjá samninginn og „vita meira“ og að svo búnu fái hún að greiða atkvæði um samninginn sjálfan. Af orðum þeirra mætti ætla að engin skuldbinding fælist í samþykki þjóðarinnar að þessu sinni, aðeins möguleikinn á frekari upplýsingum. Aftur á móti er það þekkt, t.d. frá aðildarviðræðum í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, að viðræður ríkis við ESB fela m.a. í sér aðlögun innlends regluverks að reglum ESB auk innleiðingar regluverks ESB í innlenda löggjöf, þ.e. áður en samningurinn sjálfur er borinn undir þjóðina. Það væri alger nýlunda ef aðildarviðræðurnar fælu aðeins í sér að teikna upp samninginn sjálfan án nokkurra aðlögunar- og innleiðingarskrefa, eins og hefur raunar nýverið komið fram í áliti erlendra sérfræðinga og áður af hálfu stækkunarstjóra ESB og lesa má um í löngu máli á vef sambandsins. Erfiðum spurningum ósvarað Að þessu tilefni spurði blaðamaður Morgunblaðsins Þorgerði Katrínu að loknum ríkisstjórnarfundi í liðinni viku hvort aðeins stæði til að teikna upp samning í viðræðuferlinu, án þess að stíga nokkur skref til aðlögunar á regluverki ESB. „Ef þú ert að vísa til Króatíu, þá var hún í allt öðru umhverfi en við. Við erum búin að aðlaga okkur 80% að regluverki Evrópusambandsins og það er ekki hægt að líkja því saman við það sem Króatar stóðu frammi fyrir. Mér er sama hvað þið viljið kalla það, niðurstaðan er bara samningur. Ef hann er góður fyrir Ísland, þá verð ég rosa glöð. Ef hann er vondur fyrir Ísland, þá segi ég nei.“ Ítrekaði blaðamaður þá spurningu sína um það hvort engin skref yrðu stigin í átt að aðlögun samhliða viðræðum. „Láttu ekki svona,“ sagði ráðherrann þá og bætti við: „Við erum 80% inni í regluverki ESB.“ Sú fullyrðing, að Ísland sé búið að innleiða 80% af regluverki ESB, hefur reyndar verið dregin í efa og bendir samantekt í skýrslu utanríkisráðuneytisins frá árinu 2018 til þess að hlutfallið sé miklum mun lægra, þótt það sé eflaust flókið og matskennt. Án þess að taka afstöðu til þess var ráðherra því næst spurður um hvort að orð hans um að 80% innleiðing regluverksins væri yfirstaðin þýddu að samhliða viðræðum færi fram aðlögun á þeim 20% sem eftir stæðu. Utanríkisráðherra tók spurningunni ekki vel og þótti hún ekki fagleg. „Það sem er verið að segja er að við erum ekki aðilar að sjávarútvegsstefnunni, við erum ekki aðilar að hluta til að heilbrigðismálunum – eins og við fundum í covid – og við erum ekki hluti af landbúnaðarstefnunni. Um þetta verður samið, um auðlindir …“ Blaðamaður ítrekaði því spurninguna og spurði enn fremur hvort ekki væri mikilvægt að þjóðin vissi það áður en hún gengi að kjörborðinu hvort einungis stæði til að leggja drög að aðildarsamningi eða hvort viðræðurnar fælu einnig í sér aðlögun, líkt og tíðkast hefði við aðildarsamninga annarra ríkja undanfarna áratugi. „Það er verið að fara að semja. Punktur. Það er verið að fara að semja og farið nú að horfast í augu við það einu sinni,“ sagði ráðherrann að lokum. Upplýst ákvörðun í aðsigi Nokkuð hefur verið fjallað um að þjóðaratkvæðagreiðslan eigi að vísa veginn til upplýsingar um hvað Evrópusambandsaðild geti þýtt. Ráðherrar hafa t.d. sagt að þetta snúist um þekkingarleit fólks, þeir sem vilji vita meira kjósi já, þeir sem telja sig vita það sem þeir þurfi geti kosið nei. Þess vegna kemur þessi þögn forystumanna ríkisstjórnarinnar um lykilatriði í aðdraganda þjóðaratvæðagreiðslu nokkuð á óvart, en nokkru varðar augljóslega hvort aðildarviðræður feli í sér aðlögunar- og innleiðingarskref eða ekki. Brýnt má telja að þjóðin viti nákvæmlega hvað það umboð, sem ríkisstjórnin leitar eftir, felur í sér. Sé það jafn klippt og skorið og ráðherrarnir vilja vera láta, og feli einvörðungu í sér umboð til þess að gera drög að aðildarsamningi við ESB, en ekki samhliða skref í aðlögun að viðamiklu regluverki sambandsins, ættu skýr og afdráttarlaus svör um það varla að vefjast fyrir ráðherrunum. Óljós svör benda til þess að undirbúningnum kunni að vera ábótavant. Þjóðaratkvæðagreiðsla „Smáatriði“ segir Kristrún Ekki gekk betur að fá skýr svör um málið frá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra þegar blaðamaður spurði hana sömu spurningar í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu á miðvikudaginn í síðustu viku. Þar var hún þríspurð hvort viðræðurnar fælu í sér aðlögunarskref. Í fyrstu tveimur atrennum svaraði ráðherrann allt öðru en um var spurt og þegar blaðamaður ítrekaði spurninguna í þriðja skiptið svaraði hún: „Ég ætla ekki að fara út í smáatriði hvað þetta varðar. Þú veist vel hvað ég er að reyna að segja. Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um að vita meira. Það veit enginn hver endanlegur samningur verður og það eru upplýsingar sem þjóðin þarf að vera með.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Ráðherra fór með rangt mál » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Jóhann Elíasson: ÞAÐ ER NEFNILEGA MÁLIÐ - ÞAÐ ER AÐEINS EITT SVAR … Nýjast á mbl.is » Landsliðsmaðurinn fyrrverandi þjálfar á Ítalíu Photos: Laufey closes tour with stunning concerts in Kópavogur Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Lykilmenn snúa aftur fyrir leikinn gegn City Óskýr svör ráðherra um aðlögun Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Stríðið hefur ekkert með NATO að gera Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Landsliðsmaðurinn fyrrverandi þjálfar á Ítalíu Photos: Laufey closes tour with stunning concerts in Kópavogur Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Lykilmenn snúa aftur fyrir leikinn gegn City Óskýr svör ráðherra um aðlögun Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“

Share this article