Security News

Cybersecurity news aggregator

🏛️
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan

  • What: Discussion on information policy
  • Impact: Political debate in Iceland
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.4.2026 | 7:00 Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Varla líður sá dagur orðið að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, saki ekki okkur sem ekki erum sammála henni um að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið um upplýsingaóreiðu. Líklega er hún og aðrir Evrópusambandssinnar fyrir vikið á góðri leið með að gera landsmenn meira eða minna ónæma fyrir alvöru þessa hugtaks. Hitt er svo annað mál að á sama tíma hefur hún ítrekað gerzt sek um slíkt sjálf í umræðum um málið. Til að mynda hefur Þorgerður forðast eins og heitan eldinn að svara spurningum um eðli umsóknarferlisins sem færi í gang verði niðurstaðan í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði um Evrópusambandið í lok sumars já. Það er að um ferli sé að ræða sem gangi einkum út á aðlögun að öllu regluverki sambandsins. Sjálf hefur hún einkum kosið að tala einungis um viðræður og ófáir samherjar hennar, ekki sízt innan Viðreisnar, hafa þvertekið fyrir það að ferlið feli í sér slíka aðlögun. Hefur ESB þá verið að segja okkur ósatt? Fram kemur hins vegar með skýrum hætti í gögnum Evrópusambandsins að ferlið snúist einkum um aðlögun að regluverki þess. Til að mynda í spurt og svarað á vefsíðu þess: „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Hið sama á við um gögn Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands á sínum tíma sem ríkisstjórnin hefur nú í hyggju að reyna að endurlífga. Eða allavega Þorgerður. Þannig segir til dæmis í viðræðuramma sambandsins sem felur í sér umboð þess í viðræðunum: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Las Þorgerður ekki eigin greinargerð? Hins vegar er ekki nóg með að fram komi í gögnum Evrópusambandsins að um sé að ræða aðlögunarferli heldur kemur það einnig fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar um fyrirhugað þjóðaratkvæði sem er til meðferðar á Alþingi. Þar segir þannig: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hvernig má það vera að Þorgerður sé ekki einu sinni meðvituð um það hvað stendur í greinargerðinni með hennar eigin þingsályktunartillögu sem væntanlega var samin í utanríkisráðuneytinu? Margoft hefur verið bent á þetta í umræðunni að undanförnu en Þorgerður og aðrir Evrópusambandssinnar láta áfram eins og aðeins sé um einfaldar viðræður að ræða og enga aðlögun samhliða þeim áður en kosið yrði um samning. Vegna þess að það hentar þeim ekki að þjóðin viti þetta. Noregur fór í allt annað umsóknarferli Tengt þessu hefur Þorgerður margoft skírskotað til þess að Norðmenn hafi sótt um inngöngu í Evrópusambandið á sínum tíma og kosið um samning. Hins vegar fór Noregur aðeins í einfaldar viðræður en ekki aðlögunarferli eins og Ísland gerði og mun gera verði það samþykkt einfaldlega vegna þess að það var ekki til á þeim tíma. Það varð til eftir að Norðmenn höfnuðu inngöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1994. Þetta á Þorgerður auðvitað að vita eða geta kynnt sér. Talandi um Noreg er aldrei spurt í þarlendum skoðanakönnunum um það hvort hefja eigi aðildarviðræður eða neitt af þeim toga. Einungis um hvort fólk vilji ganga í sambandið. Enda vita Norðmenn ósköp vel að með inngöngu í Evrópusambandið fá menn einfaldlega sambandið. Þetta vita hérlendir Evrópusambandssinnar líka enda fyrir löngu búnir að gera upp hug sinn sjálfir án þess að samningur liggi fyrir. En þeir leggja hins vegar ekki í að tala fyrir inngöngu í sambandið eins og það er. Verðbólga framtíðarinnar í samningnum? Fjölmiðlar hafa enn fremur ítrekað spurt Þorgerði hvað hún telji að gæti verið í mögulegum inngöngusamningi við Evrópusambandið. Það hefur ekki beinlínis gengið vel að fá svör við því en hún hefur hins vegar minnzt bæði á vexti og verðbólgu. Heldur hún virkilega að fram komi í slíkum samningi hver verðbólga á Íslandi verði í framtíðinni gangi landið í sambandið eða hversu háir vexir? Vitanlega verður ekkert kveðið á um það í honum komi til hans. Helztu Evrópusambandssinnar, og þar á meðal ekki sízt Þorgerður, hafa annars dregið talsvert í land þegar kemur að fyrri fullyrðingum um að upptaka evrunnar þýddi lægri vexti hér á landi og minni verðbólgu. Undanfarið hefur þannig í vaxandi mæli aðeins verið sagt að til þess gæti komið í stað þess að fullyrða áður eins og um náttúrlögmál væri að ræða. Ekkert er þó minnzt á það frekar en fyrri daginn að lágir stýrivextir á evrusvæðinu séu afleiðing efnahagslegrar stöðnunar. Símareikið sem við erum þegar með Fyrr á árinu var Þorgerður einnig þráspurð um það í útvarpsviðtali hverjir væru helztu kostir þess að fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. Loks sagði hún að gott væri að komast á netið innan sambandsins. Sem sagt símareiki. Sem við erum þegar með í gegnum EES-samninginn og hún hlýtur auðvitað að vita. Talið um að hún treysti þjóðinni er svo annað enda fátt sem bendir til þess og beinlínis komið fram í máli hennar við fjölmiðla að það snúist um það að þjóðin kjósi „rétt“. Telja mætti upp margt fleira enda af nógu að taka. Hitt er svo annað mál að þegar Þorgerður og aðrir Evrópusambandssinnar tala um upplýsingaóreiðu er deginum ljósara að ekki er átt við að verið sé að fara með rangt mál heldur einfaldlega þá skoðun að vilja ekki ganga í Evrópusambandið. Með sama hætti og þegar litið er svo á í þeim röðum að vilji einhver ganga í sambandið viti hann hvað hann sé að tala um en vilji einhver það ekki viti hann ekkert hvað hann sé að tala um án samnings. Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni www.stjornmalin.is Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð „Sættum okkur ekki við samningaviðræður í skugga hótana“ Aðsend grein: Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan Komu kajakræðurum til bjargar Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bíða samþykkis stjórnvalda Hugrekkið kostaði hana lífið Óljósir samningar um aðlögun „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum Opið lengur í sundlauginni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Gunnar kjörinn formaður Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils X26: Tvísýn barátta í Rangárþingi ytra Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð „Sættum okkur ekki við samningaviðræður í skugga hótana“ Aðsend grein: Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan Komu kajakræðurum til bjargar Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljósir samningar um aðlögun Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum Opið lengur í sundlauginni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Gunnar kjörinn formaður Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Sil

Share this article