- What: An Icelandic parliamentary committee is investigating oversight of child protection matters.
- Impact: The investigation follows a report about alleged abuse at a residential facility.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ákvað í morgun að hefja frumkvæðisathugun á eftirliti með framkvæmd barnaverndarmála. Er það gert eftir umfjöllun Kveiks um ofbeldi sem húsráðandi í Bakkakoti á Suðurlandi er sögð hafa beitt börn sem þangað voru send í vist. Nefndin hefur þegar fengið fulltrúa frá Félagi fósturforeldra á sinn fund og verða fleiri gestir kallaðir fyrir nefndina. Þá verður þess farið á leit við Ríkisendurskoðun að gera úttekt. Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson