Innlent | mbl | 2.3.2026 | 13:30 Vissulega gallar við ESB en gott að komast á netið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Minnir á hegðun ESB í Icesave-deilunni Varar við inngöngu Íslands í ESB Kristrún: ESB þarf að taka mið af sérstöðu Íslands » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir vissulega galla við Evrópusambandið eins og allt annað. Kostirnir liggi hins vegar til að mynda á sviði neytendaverndar, eins og Íslendingar hafi upplifað þegar þeir nota farsíma sína frjálslega á ferðalögum um Evrópu. Þetta kom fram í viðtali við Þorgerði á Bylgjunni í morgun en þar sagði hún mikilvægt fyrir Íslendinga að láta reyna á samningaviðræður við Evrópusambandið. Tekið á olígörkunum Þegar hún var spurð hvort það væru ekki gallar við það að ganga inn í sambandið sagði Þorgerður: „Jú, guð minn góður, eru ekki kostir og gallar við allt? Ég ætla ekkert að draga dul á það og ég hefði gjarnan viljað sjá það þróast á sumum sviðum með öðrum hætti. En á móti kemur að við erum að sjá þennan heim, það eru sumir núna, m.a. fyrrverandi stjórnmálamenn sem eru að tala niður Evrópusambandið en vilja frekar sjá þennan multipolar stórveldaheim, þar sem stórveldin eiga að fá að ráða, Kína, Rússland, Indland og Bandaríkin.“ Þorgerði hugnast ekki þessi heimsýn. „Af hverju eru til að mynd Elon Musk og sumir í Bandaríkjunum og svo líka olígarkarnir í Rússlandi að agnúast út í Evrópusambandið? Af því að það er þó samfélag 27 þjóða sem er að reyna að segja og halda uppi ákveðnum sjónarmiðum um lýðræði, um frelsi og setja reglur þessum stóru olígörkum vestanhafs sem austan, segja: kæru vinir, það er hérna nokkuð sem heitir neytendavernd.“ Frétt af mbl.is Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Geta ekki verið að „ taka neytendur í rassgatið“ Að mati Þorgerðar er dæmi um þessa neytendavernd vera þá staðreynd að árið 2015 skikkaði Evrópusambandið símafyrirtæki til að gera notendum sínum kleift að nota gagnareiki í öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins án þess að greiða aukalega fyrir. „Engin þjóð hefði getað gert það ein, að fara í atlögu til að mynda við stóru símafyrirtækin, en Evrópusambandið sem heild náði að passa upp á neytendur með því að segja við símafyrirtækin í Evrópu: Þið getið ekki daginn út og daginn inn verið að taka neytendur í rassgatið, þess vegna verðum við að setja ykkur reglur með roaming ,“ sagði ráðherrann. „Og við Íslendingar þekkjum það, þegar við förum til Evrópu er ekki það fyrsta sem við gerum að fara í símann og passa upp á að taka út data roaming . Við þurfum að gera þetta þegar við förum til Bandaríkjanna og Bretlands.“ Frétt af mbl.is Verðlækkanir á farsímanotkun í reiki Tengdar fréttir Ísland og ESB Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Minnir á hegðun ESB í Icesave-deilunni Varar við inngöngu Íslands í ESB Kristrún: ESB þarf að taka mið af sérstöðu Íslands » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mourinho: Þá spilar hann aldrei aftur Vara við miklu sandfoki austan við Jökulsárlón Síðasti Japanstogarinn brátt falur Íran mun verja sig sama hvað það kostar Fólk trúir varla að þetta séu kökur Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja byggja ofan á Valhöll og breyta í hótel Skipti um kyn í miðju matarboði Myndskeið: Íranar fagna falli Khameneis Drónaskynjarar orðnir algengir Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Óveður á austurhelmingi landsins Mál tveggja í Íran á borði ráðuneytisins Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Mourinho: Þá spilar hann aldrei aftur Vara við miklu sandfoki austan við Jökulsárlón Síðasti Japanstogarinn brátt falur Íran mun verja sig sama hvað það kostar Fólk trúir varla að þetta séu kökur Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar Khamenei látinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Óveður á austurhelmingi landsins Mál tveggja í Íran á borði ráðuneytisins Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju